Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–25.2.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-39/2026

Birt: 11.2.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að stefnu

Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026-2030.

Nánari upplýsingar

Þingsályktunin er unnin upp úr tillögum starfshóps um offitu, holdafar, heilsu og líðan sem skilaði skýrslu til heilbrigðisráðherra í febrúar 2024, en byggir einnig á vinnu verkefnastjóra og þverfaglegri vinnustofu um málefni offitu á Íslandi sem haldin var á vegum ráðuneytisins í maí 2025.

Framtíðarsýn stjórnvalda í málaflokknum er fjórþætt:

1) Efling forvarna með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegra offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Þá verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum.

2) Algengi offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndunum.

3) Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum.

4) Fjölbreytt og fagleg meðferðarúrræði verði aðgengileg þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda vegna sjúkdómsins.

Aðgerðaáætlunin skiptist í þrjá kafla: 1) Forvarnir og skimun; 2) Gagnaöflun, rannsóknir og skráningar; og 3) Heildræn heilbrigðisþjónusta fyrir börn og fullorðna.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is