Mál nr. S-38/2026

Birt: 11.2.2026

Fjöldi umsagna: 0

Annað

Utanríkisráðuneytið

Utanríkismál

Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034

Málsefni

Framkvæmdastjórn ESB birti nýlega tillögur að nýjum samstarfsáætlunum fyrir tímabilið 2028-2034. Leitað er samráðs um þátttöku Íslands.

Nánari upplýsingar

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) birti nýlega tillögur að nýjum samstarfsáætlunum fyrir tímabilið 2028-2034. Umfangsmiklar breytingar eru boðaðar á skipulagi og framkvæmd áætlana sem Ísland á aðild að á grundvelli EES-samningsins. Haghafar eru hvattir til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna yfirstandandi mats á þátttöku Íslands í einstökum samstarfsáætlunum ESB á næsta starfstímabili, þ.m.t. um hag af þátttöku í núverandi áætlunum og tækifæri og áskorunum með tilliti til nýrra samstarfsáætlana eins og þær eru settar fram í tillögum framkvæmdastjórnar ESB.

Stærsta breytingin frá núverandi fyrirkomulagi felst í stofnun nýs Samkeppnishæfnissjóðs (e. European Competitiveness Fund, ECF). Sjóðnum er ætlað að stórefla fjárfestingar og stuðning við nýsköpun og tækniþróun. Fjármagn verður aukið verulega til að efla viðnámsþrótt, öryggi, geim- og varnariðnað. Eftirfarandi áætlanir með þátttöku Íslands verða allar sameinaðar undir merkjum Samkeppnishæfnisjóðsins: Umhverfis- og lofslagsáætlunin Life, heilbrigðisáætlunin EU4Health, Digital Europe um stafræna tækni, Geimáætlun ESB, Iris2 um örugga samskiptatækni og fjárfestingáætlunin InvestEU. Rannsókna- og nýsköpunaráætlunin Horizon Europe verður áfram sjálfstæð áætlun, þó með verulegri samþættingu við Samkeppnishæfnisjóðinn. Þá verður aukin áhersla lögð á rannsóknir og tækniþróun með tvíþætt notagildi (e. dual-use).

Mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlunin Erasmus+ breytist lítið en aukin áhersla verður lögð á hreyfanleika og hæfniuppbyggingu á öllum skólastigum og sérlega horft til færniuppbyggingar á tilteknum forgangssviðum. Þá mun sjálfboðaáætlunin European Solidarity Corps sameinast Erasmus+. Ný áætlun, AgoraEU, mun sameina menningar- og kvikmyndaáætlunina Creative Europe við áætlun um borgaralega þátttöku, jafnrétti, réttindi og gildi (e. Citizens, Equality, Rights and Values Programme, CERV), sem Ísland á ekki aðild að. Áætlun um innri markaðs- og tollamál (e. Single Market and Customs programme, SMCP) mun sameina stærstan hluta af núgildandi áætlun um innri markaðsmál (e. Single Market Programme, SMP), með þátttöku Íslands, við áætlanir á sviði tolla, skatta og ráðstafana gegn fjársvikum. Almannavarnaráætlunin (e. Union Civil Protection Mechanism, UCPM) verður styrkt verulega til að auka samvinnu um forvarnir, undirbúning og viðbragð við náttúru- og heilsuvá sem og manngerðri hættu.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og utanríkisráðuneyti leiða undirbúning með þátttöku annarra ráðuneyta. Leitað er eftir umsögnum til að undirbyggja ákvarðanir um þátttöku í nýjum samstarfsáætlunum ESB.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og utanríkisráðuneytið efndu í sameiningu til kynningarfundar um opið samráð um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034 þann 18. febrúar sl. Upptöku af fundinum má finna á eftirfarandi slóð: https://www.youtube.com/watch?v=2wqHCPQx3JY.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Viðskiptaskrifstofa

vss@utn.is