Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 13.–26.2.2026

2

Í vinnslu

  • 27.2.–25.3.2026

3

Samráði lokið

  • 26.3.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-36/2026

Birt: 13.2.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að reglugerð um álagningu dagsekta skv. lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust um málið í samráðsgátt. Reglugerð nr. 300/2026 um álagningu dagsekta samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, var birt í Stjórnartíðindum 26.03.2026.

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að reglugerð um álagningu dagsekta skv. lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019.

Nánari upplýsingar

Í e-lið 19. gr. laga um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, er ráðherra veitt heimild til að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd álagningu dagsekta og stjórnvaldssekta skv. III. kafla laganna. Þau drög að reglugerð sem nú eru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda byggja á framangreindri heimild og eru til nánari útfærslu á framkvæmd álagningar dagsekta samkvæmt III. kafla laga um skráningu raunverulegra eigenda og til viðbótar við ákvæði kaflans um álagningu dagsekta.

Í reglugerðardrögunum er gert ráð fyrir að aðilum sem ekki sinna skyldu sinni samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda sé send tilkynning um fyrirhugaða álagningu dagsekta og um leið sé gerð krafa um úrbætur og aðilum veittur þriggja vikna frestur frá dagsetningu tilkynningar til að bregðast við. Séu umbeðnar upplýsingar eða gögn ekki veitt eða aðili sinnir ekki kröfu um úrbætur innan frestsins getur ríkisskattstjóri, með úrskurði, lagt dagsektir á viðkomandi aðila. Dagsektir eru þá lagðar á frá dagsetningu úrskurðar og falla á fyrir hvern dag sem líður þar til fullnægjandi upplýsingar og/eða gögn hafa borist ríkisskattstjóra.

Birting tilkynninga og úrskurða vegna álagningar dagsekta skv. lögum um skráningu raunverulegra eigenda hefur frá 1. janúar 2025 verið í samræmi við ákvæði laga um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Í reglugerðardrögunum er vísað til framangreindrar birtingar í stafrænu pósthólfi viðkomandi aðila.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

atrn@atrn.is