Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 9.–22.2.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-34/2026

Birt: 9.2.2026

Fjöldi umsagna: 14

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)

Málsefni

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist þegar gildi en að mögulegt verði að sækja um að nýta hana afturvirkt frá 1. janúar 2026.

Í flestum meginatriðum er lagt til að sambærileg skilyrði gildi um nýtingu heimildarinnar og gilt hafa undanfarin ár. Þó eru lagðar til nokkrar breytingar. Þar má helst nefna tillögu um að einstaklingum verði framvegis heimilt að nýta sér heimildina í tíu ár eða samanlagt 120 mánuði að hámarki.

Þá er lagt til að hámarksfjárhæð til skattfrjálsrar ráðstöfunar á árinu 2026 geti að hámarki numið samtals 500 þús. kr. og að sú fjárhæð taki árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027. Þá er lagt til að hámarksfjárhæð miðast í öllum tilvikum við einstaklinga í stað þess að sérstakt lægra viðmið gildi fyrir hjón og sambúðarfólk.

Loks er í frumvarpinu tillögur að breytingum á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Breytingunum er ætlað að samræma betur skilyrði úrræðanna tveggja og einfalda framkvæmd.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (11)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is