Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.–27.2.2026

2

Í vinnslu

  • 28.2.–23.6.2026

3

Samráði lokið

  • 24.6.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-32/2026

Birt: 5.2.2026

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)

Niðurstöður

Málið var lagt fram á Alþingi 1. apríl 2026. Málið náði ekki fram að ganga á 157. löggjafarþingi, upplýsingar um framvindu málsins má finna á vef Alþingis, sjá hér: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/604/?ltg=157&mnr=604. Málið verður endurflutt á 158. löggjafarþingi.

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (nefnd SRDII). Jafnframt er með frumvarpinu innleidd framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212 frá 3. september 2018 um lágmarkskröfur varðandi framkvæmd ákvæða tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36/EB að því er varðar auðkenningu hluthafa, sendingu upplýsinga og að auðvelda hluthöfum að nýta sér réttindi sín.

Framangreind tilskipun miðar að því að hvetja til langtímaþátttöku hluthafa og auka gagnsæi í samskiptum hlutafélaga og fjárfesta. Tilefni tilskipunarinnar má rekja til þess mats Evrópusambandsins, sem m.a. byggir á reynslu af fjármálakreppunni, að hluthafar hafi í of miklum mæli stutt við skammtímaáhættusækni stjórnenda. Þá hafi eftirlit og aðkoma stofnanafjárfesta og eignastýringaraðila oft verið ófullnægjandi og miðist um of við skammtímaávöxtun, sem geti leitt til lakari stjórnarhátta og verri afkomu fyrirtækja til lengri tíma litið. Til að bregðast við þessu kveður tilskipunin á um sértækar ráðstafanir sem miða að því að auðvelda félögum að bera kennsl á hluthafa sína og tryggja skilvirka miðlun upplýsinga milli félagsins og hluthafa í gegnum keðju milliliða. Jafnframt eru gerðar kröfur um aukið gagnsæi varðandi fjárfestingarstefnu stofnanafjárfesta og þeirra sem sinna eignastýringu, sem og starfsemi umboðsráðgjafa. Þá felur tilskipunin í sér nýjar reglur um starfskjarastefnu stjórnenda og aukin áhrif hluthafa á hana, auk reglna um gagnsæi og samþykki vegna viðskipta við tengda aðila. Markmiðið er að skapa nútímalegan lagaramma sem stuðlar að virkari hluthafaþátttöku og sjálfbærum rekstri félaga sem hafa hlutabréf sín tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Með frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á lögum um einkahlutafélög til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til á lögum um hlutafélög hvað varðar starfskjarastefnu félaga.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

atrn@atrn.is