Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.–20.2.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-31/2026

Birt: 5.2.2026

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaður

Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpi þessu er lagt til að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í nýja stofnun. Jafnframt er lagt til að matvælaeftirlit færist frá heilbrigðiseftirlitssvæðum til nýrrar stofnunar. Með því að sameina starfsemi framangreindra stofnana sem og að færa matvælaeftirlit til nýrrar stofnunar verður til ný öflug stjórnsýslu og eftirlitsstofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða. Þjónusta við atvinnulíf verður einfaldari og skilvirkari með færri samskiptaleiðum og skýrari ferlum. Öflugar starfsstöðvar verða staðsettar um land allt.

Með frumvarpinu verða embætti Fiskistofustjóra, forstjóra Matvælastofnunar, embætti yfirdýralæknis og forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs lögð niður. Önnur störf hjá framangreindum stofnunum verða einnig lögð niður en kveðið verður á um forgang starfsmanna í störf hjá nýrri stofnun. Jafnframt er kveðið á um forgang starfsmanna heilbrigðiseftirlitssvæða sem sinnt hafa matvælaeftirliti í störf hjá hinni nýju stofnun. Heimilt verður að ráða nýjan forstjóra áður en stofnunin tekur til starfa og mun hann hafa heimild til þess að undirbúa nýja stofnun en gert er ráð fyrir að hún taki til starfa 1. janúar 2027.

Með frumvarpinu er einnig verið að bregðast við áminningu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem farið er fram á að opinbert eftirlit á sviðum matvæla, fóðurs og dýraheilbrigðis fari fram á skilvirkan hátt og í samræmi við EES reglur en stofnunin hefur gert athugasemdir við eftirlit með matvælum frá árinu 2010.

Verðlagsstofa skiptaverðs verður lögð niður en verkefni hennar verða hluti af nýrri stofnun og munu þau verða unnin innan sérstakrar einingar þar sem fylgst verður með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna. Með frumvarpinu er lagt til að ný stofnun hafi auknar heimildir til þess að afla upplýsinga um fiskverð og afurðaverð úr tollaupplýsingum frá Skattinum en það er talið nauðsynlegt svo að stofnunin geti borið saman upplýsingar sem útgerðir skila inn til stofnunarinnar og raunverð sem samið er um í útflutningi á fiski og afurðum og kemur fram í tollskýrslum. Þannig mun stofnunin geta aflað upplýsinga frá Skattinum með almennum hætti yfir tiltekin tímabil en ekki einungis í einstaka málum.

Að lokum er óskað eftir tillögum að nafni nýrrar stofnunar.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa auðlinda, skrifstofa landgæða og dýraheilsu

atrn@atrn.is