Til umsagnar
5.–19.2.2026
Í vinnslu
20.2.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-30/2026
Birt: 5.2.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Áform um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum.
Evrópusambandið (ESB) samþykkti þann 14. maí 2024 svokallað verndar- og fólksflutningasamkomulag Evrópusambandsins (e. Pact on Migration and Asylum), sem samanstendur af tíu gerðum sem koma samtímis til framkvæmda á Schengen-svæðinu þann 12. júní 2026. Meginmarkmið verndarsamkomulagsins er að styrkja stjórn á ytri landamærum Schengen-svæðisins, samhæfa aðgerðir lögregluyfirvalda og efla skilvirkni við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd.
Ísland er skuldbundið til að innleiða þann hluta verndarsamkomulagsins sem telst til þróunar á Schengen regluverkinu og á grundvelli þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem leiða af samningi milli Evrópusambandsins, lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs, frá 19. janúar 2021, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki beri ábyrgð á beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki Evrópusambandsins, á Íslandi eða í Noregi. Nánar tiltekið ber að innleiða reglugerð (ESB) 2024/1351 um stjórnun verndar- og fólksflutningsmála (AMMR-reglugerðin), reglugerð (ESB) 2024/1358 um evrópska fingrafarargrunninn (Eurodac) og reglugerð (ESB) 2024/1359 um að taka á neyðarástandi á landamærum.
Samningurinn tengir Ísland og Noreg við framkvæmd svonefnds Dyflinnarsamnings, ásamt þeim réttarreglum sem ESB hefur sett í tengslum við framkvæmd hans, auk þátttöku í þeim kerfum sem nauðsynleg eru til að framfylgja samningnum, þar á meðal evrópska fingrafaragrunninum Eurodac.
Kveðið er á um meginákvæði og grunnskilyrði Dyflinnarreglugerðar (ESB) nr. 604/2013 í 3., 5. og 7. kafla AMMR reglugerðarinnar sem Ísland er skuldbundið til að innleiða á grundvelli áðurnefnds samnings Íslands og Noregs við ESB. Kaflarnir kveða á um endurskoðun á reglum um ábyrgðarríki, málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og breytingar á tímafrestum og aukna upplýsingaskyldu gagnvart umsækjendum sem sæta málsmeðferð samkvæmt reglugerðinni. Reglugerðin kveður einnig á um breytingar á kærufresti í ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli AMMR- málsmeðferðarinnar og að kæra slíkra ákvarðana hafi ekki í för með sér frestun réttaráhrifa. Áfram verður heimilt að krefja það ríki sem ber ábyrgð á umsókn um vernd um að taka við umsækjanda.
Reglugerð um að taka á neyðarástandi á landamærum kveður á um undanþáguheimildir frá AMMR-reglugerðinni þegar samstarfsríki Schengen glíma við neyðarástand á landamærum. Ísland er bundið af 12. og 13. gr. reglugerðarinnar, auk 1-6 .gr að því marki sem þær varða beitingu fyrrnefndra ákvæða.
Nýja Eurodac-reglugerðin felur í sér breytingar á hlutverki Eurodac-fingrafaragrunnsins og er Ísland skuldbundið til að innleiða gerðina, að undanskildum 7. og 8. kafla hennar. Eurodac er sameiginlegur gagnagrunnur Schengen-ríkjanna sem nýtist m.a. við auðkenningu umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kerfið gerir samstarfsríkjum Schengen kleift að leita í grunninum á grundvelli fingrafaraskráninga og í framhaldinu m.a. að ákveða hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um vernd. Með reglugerðinni breytist Eurodac úr því að vera eingöngu fingrafaragrunnur í víðtækari lífkennagagnagrunn sem geymir m.a. fingraför, ljósmyndir og aðrar persónuupplýsingar. Þá verður skráning heimiluð fyrir fleiri hópa einstaklinga og aldurstakmark fingrafaraskráningar barna verður lækkað úr 14 ára niður í 6 ára.
Áformað er að gera breytingar á lögum um útlendinga nr. 80/2016 og lögreglulögum nr. 90/1996 til að innleiða fyrrnefndar gerðir. Breytingarnar miða að því að draga úr áframhaldandi för einstaklinga innan Schengen svæðisins, ásamt því að stuðla að skilvirkari málsmeðferð og stuðla þannig að hagræðingu í nýtingu fjármagns.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa alþjóðamála
dmr@dmr.is