Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.–19.2.2026

2

Í vinnslu

  • 20.2.2026–

Samráði lokið

Mál nr. S-29/2026

Birt: 5.2.2026

Fjöldi umsagna: 276

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um breytingu á lögum um útlendinga (fjöldaflótti)

Málsefni

Áformaðar eru breytingar á 9. og 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016 um annars vegar skipan flóttamannanefndar og hins vegar um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta.

Nánari upplýsingar

Megintilgangur frumvarpsins er að samræma ákvæði 44. gr. laga um útlendinga, er varða dvalarleyfi einstaklinga sem dvelja hér á landi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, við löggjöf og framkvæmd Evrópusambandsins, auk þess sem miðað er við sambærilega framkvæmd í Noregi og Danmörku. Verði ekki ráðist í lagabreytingar mun verulegur fjöldi einstaklinga sem nú dvelja hér á landi á grundvelli fjöldaflótta öðlast, í mars 2027 eða þegar stríðinu í Úkraínu lýkur, rétt til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða og að liðnu einu ári með slíkt leyfi rétt til ótímabundins dvalarleyfis. Slík þróun myndi leiða til þess að íslensk framkvæmd yrði frábrugðin samræmdri áætlun sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins.

Þá eru gerðar breytingar á ákvæði laganna varðandi skipan Flóttamannanefndar sem verður framvegis á ábyrgðarsviði dómsmálaráðherra.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is