Til umsagnar
2.–16.2.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-24/2026
Birt: 2.2.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
Með frumvarpinu eru innleiddar tvær Evróputilskipanir sem báðar hafa verið teknar upp í EES-samninginn, þ.e. tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2023/2775 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101. Frumvarpið er í samræmi við áherslur úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi. Með frumvarpinu er reynt að tryggja að flokkun félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra og lögð til rýmkun á stærðarmörkum þeirra félaga sem geta nýtt sér einföld rafræn skil, með því að vera skilgreind sem örfélög. Stór hlut íslenskra fyrirtækja fellur þar undir. Verði frumvarpið að lögum munu fleiri minni rekstraraðilar hér á landi falla undir skilgreiningu laganna um örfélög og njóta þeirrar stöðu sem því fylgi. Með frumvarpinu er verið að koma á móts við ábendingar frá atvinnulífinu um að dreifa álagi skila ársreikninga yfir lengri tíma, létta álögur á minnstu félögin en fá upplýsingar fyrr fyrir stærri félög, sem er liður í aukinni skilvirkni og gagnsæi fyrir markaðinn. Þær breytingar sem er að finna í frumvarpinu eru fjórþættar.
Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu á stærðarmörkum í lögunum. Stærðarmörk félaga í lögum um ársreikninga eru þau sömu innan EES og er með frumvarpinu verið að hækka þau um 25%, þó eru örfélögin hækkuð hlutfallslega meira þar sem fyrri mörk voru lægri en hæstu leyfileg mörk samkvæmt ársreikningatilskipuninni.
Í öðru lagi er í frumvarpinu lögð til hækkun um 25% á endurskoðunarmörkum í lögunum. Talið er rétt að hækka endurskoðunarmörkin í samræmi við hækkun á stærðarmörkum félaga. Með þessari breytingu er meðal annars verið að bregðast við ábendingum sem fram hafa komið frá atvinnulífinu.
Í þriðja lagi er um að ræða innleiðingu á tilskipun (ESB) nr. 2021/2101 er varðar skyldu um að útbúa skýrslu með upplýsingum um tekjuskatt. Markmið tilskipunarinnar er almennt að auka gagnsæi og ábyrgð félaga. Tilskipunin tekur eingöngu til stórra fjölþjóðlegra félaga. Lagt er til að tilskipunin verði innleidd með breytingum á lögum um ársreikninga og að ráðherra verði falið að kveða nánar á um framkvæmdina í reglugerð.
Í fjórða lagi er um að ræða breytingar er lúta að skilum ársreikninga til opinberrar birtingar. Er með frumvarpinu lagt til að stærri og kerfislega mikilvæg félög skili ársreikningi fyrr á árinu en að skilafrestur fyrir minni félög verði lengdur.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa viðskipta og markaða
atrn@atrn.is