Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.1.–2.3.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-22/2026

Birt: 30.1.2026

Fjöldi umsagna: 0

Stöðumat og valkostir

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Grænbók um byggðamál

Málsefni

Í grænbókinni er fjallað um stöðu byggðamála á Íslandi og áskoranir og tækifæri næstu ára. Þá eru sett fram lykilviðfangsefni og lagðar til áherslur og leiðir til að fylgja þeim.

Nánari upplýsingar

Gildandi byggðaáætlun var samþykkt einróma á Alþingi í júní 2022. Aðgerðaáætlun hennar nær yfir tímabilið 2022-2026 og er endurskoðun hafin. Útgáfa grænbókarinnar er liður í þeirri endurskoðun. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst leggja fram þingsályktunartillögu að nýrri stefnumótandi byggðaáætlun haustið 2026. Áætlunin felur í sér stefnu til fimmtán ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.

Grænbók um byggðamál er ætlað að veita upplýsingar um núverandi stöðu byggðamála á Íslandi og vera grunnur að vinnu við þingsályktunartillögu, þar með talið aðgerðaáætlun. Í grænbókinni er leitast við að svara því hvernig gildandi byggðaáætlun hefur reynst og hverjar séu helstu áskoranir og tækifæri næstu 15 ára. Þá eru sett fram lykilviðfangsefni og lagðar til áherslur og leiðir til að fylgja þeim eftir.

Við gerð grænbókarinnar var lögð áhersla á samráð við hagaðila og almenning. Haldnir voru nokkrir fundir og boðið upp á opið samráð á vef Byggðastofnunar. Almenn sátt virðist ríkja um form og inntak byggðaáætlunar. Því eru ekki lagðar til miklar breytingar þar á.

Tilgangurinn með því að leggja grænbókina í samráðsgátt stjórnvalda er fyrst og fremst að kalla eftir áliti á stöðumatinu, en ekki síður þeim lykilviðfangsefnum og áherslum sem þar eru sett fram. Að loknu samráði verður unnið úr umsögnum og undirbúningur hafinn að ritun hvítbókar, sem felur í sér drög að stefnu og aðgerðum og er undanfari tillögu til þingsályktunar. Áætlað er að hvítbókin verði birt í samráðsgátt vorið 2026.

Frestur til að skila umsögnum og ábendingum um grænbókina í samráðsgátt er til og með 2. mars 2026.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála

irn@irn.is