Til umsagnar
30.1.–27.2.2026
Í vinnslu
28.2.–2.7.2026
Samráði lokið
3.7.2026
Mál nr. S-21/2026
Birt: 30.1.2026
Fjöldi umsagna: 15
Annað
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Í janúar 2026 voru birt áform stjórnvalda um undirbúning að fjórðu allsherjarúttekt og óskað eftir tillögum og ábendingum um áhersluatriði í skýrslu Íslands. 14 umsagnir bárust og snertu þær á ýmsum atriðum er varða mannréttindavernd á Íslandi og stöðu einstakra tilmæla frá síðustu úttekt. Áhersla var meðal annars lögð á mannréttindafræðslu, réttindi barna og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Umsagnirnar hafa verið hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skrif á skýrslu Íslands.
Óskað er eftir tillögum og ábendingum um það sem leggja skal áherslu á í skýrslu Íslands vegna allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála hér á landi.
Hafinn er undirbúningur að fjórðu allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála (e. Universal Periodic Review, UPR) hér á landi.
Allsherjarúttektin felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og fer fram á u.þ.b. fimm ára fresti. Ferlið byggir á jafningjarýni ríkja. Þau fara yfir stöðu mannréttindamála hjá hverju öðru, koma með ábendingar og skora á hvert annað að gera betur. Markmiðið með ferlinu er meðal annars að bæta stöðu mannréttindamála í heiminum og hvetja ríki til þess að uppfylla skuldbindingar sínar í þeim efnum. Ísland hefur þrisvar sinnum farið í gegnum úttektina, fyrst árin 2011 til 2012 og síðast árin 2021 til 2022. Næsta úttekt fer fram árin 2026 til 2027.
Úttektin felst meðal annars í því að Íslandi ber að skila skýrslu til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir 1. október 2026. Mun skýrslan fjalla um þróun mannréttindamála á Íslandi frá síðustu úttekt ráðsins árin 2021 til 2022 og hvernig hefur verið brugðist við ábendingum vegna hennar.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi sér um framkvæmd verkefnisins og skýrsluskrifin. Áhersla verður lögð á náið samráð við hagsmunaaðila á öllum stigum vinnunnar. Því er óskað eftir ábendingum og tillögum um þau atriði sem leggja skal áherslu á í skýrslunni.
Stefnt er að því að drög að skýrslu Íslands til Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna verði birt í samráðsgátt stjórnvalda í júní.
Frjáls félagasamtök sem taka vilja þátt í úttektinni þurfa að skila inn upplýsingum eigi síðar en 17. júlí 2026. Nánari upplýsingar má nálgast hér: https://www.ohchr.org/EN/HRBodies/UPR/Pages/NgosNhris.aspx.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa jafnréttismála
dmr@dmr.is