Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.1.–13.2.2026

2

Í vinnslu

  • 14.–16.2.2026

3

Samráði lokið

  • 17.2.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-18/2026

Birt: 28.1.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust

Málsefni

Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (hér eftir ECSP).

Nánari upplýsingar

Í aðfaraorðum reglugerðar (ESB) 2020/1503 (ECSP) kemur fram að hópfjármögnun geti stuðlað að því að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum aðgang að fjármögnun og koma á sambandi fjármagnsmarkaða. Ásamt því að veita leið til fjármögnunar getur hópfjármögnun veitt fyrirtækjum annars konar ávinning líkt og að gefa viðskiptahugmynd ákveðna staðfestu, stuðla að betri markaðssetningu fyrirtækja og veita frumkvöðlum aðgang að miklum fjölda einstaklinga sem geta veitt hagnýtar upplýsingar. Mörg aðildarríki innan Evrópusambandsins hafa innleitt sérsniðnar landsbundnar reglur um hópfjármögnun, þ.m.t. um rekstrarfyrirkomulag vettvanga fyrir hópfjármögnun, umfang leyfilegrar starfsemi og kröfur um starfsleyfi. Ólíkar landsbundnar reglur geta hindrað veitingu hópfjármögnunarþjónustu yfir landamæri þar sem slíkt gæti dregið úr áhuga hjá annars vegar fjárfestum til að fjárfesta yfir landamæri á vettvöngum hópfjármögnunar og hins vegar hjá þjónustuveitendum hópfjármögnunar á að bjóða þjónustu sína í öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins en í því ríki þar sem þeir hafa staðfestu. Hópfjármögnunarþjónusta hefur þ.a.l. hingað til verið að mestu landsbundin sem hefur neikvæð áhrif á stofnun hópfjármögnunarþjónustu á vettvangi Evrópusambandsins og stendur þar með í vegi fyrir því að fyrirtæki hafi haldbæran aðgang að slíkri þjónustu, einkum hjá fyrirtækjum sem starfa á litlum landsbundnum mörkuðum. Með samræmdu evrópsku regluverki um hópfjármögnunarþjónustu yfir landamæri er stuðlað að auðveldari aðkomu til að veita og þiggja hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins ásamt aukinni fjárfestavernd.

Frumvarpið felur í sér innleiðingu ECSP í íslenskan rétt með setningu nýrra laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Meginefni frumvarpsins er lögfesting ECSP og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, þar á meðal heimildir eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlög við brotum gegn ákvæðum ECSP og heimild ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is