Til umsagnar
27.1.–10.2.2026
Í vinnslu
11.2.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-16/2026
Birt: 27.1.2026
Fjöldi umsagna: 10
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um frumvarp til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2018/2001 (REDII), um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum er hluti af hreinorkupakka Evrópu (e. Clean energy for all Europeans package). Tilskipunin leysir af hólmi eldri gerð nr. 2009/28 (REDI).
Tilskipunin gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum ásamt því að stuðla að auknu orkuöryggi með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis t.a.m. með þróun endurnýjanlegrar hitunar og kælingar og þróun endurnýjanlegs flutningaeldsneytis, sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði og með því að ýta undir tækniþróun og nýsköpun. Ætlunin er að skapa umhverfi og aðstæður til að flýta fyrir opinberum og einkareknum fjárfestingum í nýsköpun og nútímavæðingu lykilatvinnugreina. Sett er það markmið að hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í heildarnotkun verði a.m.k. 32% árið 2030 og 14% fyrir samgöngur á landi.
Markmið tilskipunarinnar er að stuðla að aukinni notkun á endurnýjanlegri orku en það er mikilvægur hluti þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og til að uppfylla sameiginleg markmið aðildarríkja ESB, auk Íslands og Noregs, skv. Parísarsáttmálanum um 55% samdrátt í losun árið 2030 miðað við 1990.
Helstu nýmæli eru ákvæði um leyfisveitingarferli fyrir virkjanir sem framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum, ákvæði um hitaveitur, virka notendur sem framleiða og selja inn á kerfið, upprunaábyrgðakerfið er fest frekar í sessi og nær til fleiri orkugjafa en áður og sett eru viðmið um sjálfbærni lífeldsneytis og ákvæði um vottun þess. Að auki er kveðið á um upplýsingagjöf til almennings, m.a. um stuðningsráðstafanir, og þjálfun og vottunarkerfi fyrir aðila sem koma að uppsetningu hitakerfa, sbr. 18. gr., og um samfélög um endurnýjanlega orku þar sem kaupendur geti tekið þátt og framleitt og selt endurnýjanlega orku án þess að tapa rétti sínum sem neytendur, sbr. 22. gr.
Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 koma fram aðlaganir m.a. þess efnis að Ísland setur sér eigin landsmarkmið auk þess Ísland fær svokallaða Kýpur/Möltu undanþágu þar sem landið er háð flugsamgöngum.
Áformin eru opin til samráðs til og með 10. febrúar nk.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.is