Til umsagnar
23.1.–8.2.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-15/2026
Birt: 23.1.2026
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga sem fyrirhugað er að komi í stað laga um vitamál nr. 132/1999
Frumvarpið er unnið í innviðaráðuneytinu í nánu samráði við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina.
Markmið frumvarpsins er að bregðast við ákalli um heildarendurskoðun laga um vitamál nr. 132/1999. Núgildandi lög um vitamál eru talin komin til ára sinna og innihalda ákvæði sem þarfnast uppfærslu. Með frumvarpinu er ætlunin að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi og skýra skiptingu verkefna milli aðila þannig að samhljómur verði á við aðra málaflokka samgangna. Stefnt er að því að regluverk sé einfaldað án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi. Þá er stefnt að því að tryggja að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar í málaflokknum.
Nokkuð skortir á að núverandi lög haldist í hendur við breytingar í þjóðfélaginu, sem dæmi má nefna að sjókvíaeldi hefur aukist mikið síðan núverandi lög voru sett. Bent hefur verið á mikilvægi þess að mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi verið framkvæmt. Í frumvarpinu er kynnt nýtt ákvæði sem fjallar sérstaklega um áhættumat siglinga en kallað hefur verið eftir lagabreytingum til að tryggja lagastoð fyrir því og skýra betur framkvæmd þess. Í ákvæðinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum áhættumats siglinga.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is