Til umsagnar
23.–30.1.2026
Í vinnslu
31.1.–21.6.2026
Samráði lokið
22.6.2026
Mál nr. S-13/2026
Birt: 23.1.2026
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Engin umsögn barst um áformin. Frumvarp til laga sem byggði á áformunum var til umsagnar í Samráðsgátt sjá mál nr. S-42/2026.
Áform um breytingu á lögum um fullnustu refsinga
Til athugunar er að breyta þeim ákvæðum laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016 sem varða reynslulausn, þannig að tímabundið og í sérstökum tilvikum þar sem fyrir liggur að mönnum verði brottvísað af landinu í kjölfar afplánunar megi veita erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við landið reynslulausn fyrr en nú er gert ráð fyrir samkvæmt lögum. Mun það létta á fangelsum landsins og jafnframt koma mönnum með lítil eða engin tengsl við landið af landi brott. Jafnframt verða tekin til skoðunar þau ákvæði laganna sem gera ráð fyrir að Fangelsismálastofnun geti í vissum tilvikum heimilað afplánun utan fangelsis.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttarfars
dmr@dmr.is