Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.1.–6.2.2026

2

Í vinnslu

  • 7.2.–16.3.2026

3

Samráði lokið

  • 17.3.2026

Mál nr. S-12/2026

Birt: 23.1.2026

Fjöldi umsagna: 8

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um breytingu á lögum um útlendinga (dvalarleyfi)

Niðurstöður

Alls bárust átta umsagnir um málið og voru þær teknar til skoðunar við undirbúning frumvarpsins.

Málsefni

Fyrirhugaðar eru breytingar á ákvæðum laga um útlendinga er varða útgáfu dvalarleyfa og grunnskilyrði þeirra og eru hluti af heildarendurskoðun regluverks dvalarleyfa.

Nánari upplýsingar

Fyrirhugaðar eru breytingar á ákvæðum V., VII. og VIII. kafla laga um útlendinga er varða útgáfu dvalarleyfa og grunnskilyrði þeirra. Frumvarpið er liður í markmiði stjórnvalda að mörkuð verði skýr stefna um útgáfu dvalarleyfa og byggja fyrirhugaðar breytingar á niðurstöðum starfshóps um dvalarleyfi frá nóvember 2025. Þá eru áætlaðar frekari breytingar, með hliðsjón af niðurstöðum starfshópsins, á haustþingi 2026.

Markmið þeirra breytinga sem lagðar eru til er að auka vægi öryggisþátta við afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi, samræma lagaskilyrði og framkvæmd við löggjöf hinna Norðurlandanna og fella brott séríslenskar reglur í flokki fjölskyldusameininga. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á ákvæðum dvalarleyfa fyrir þolendur mansals til hagsbóta fyrir mögulega þolendur mansals. Þess má vænta þess að langtímaáhrif breytinganna séu til þess fallin að auka fyrirsjáanleika í þróun dvalarleyfa hér á landi og að öryggisþættir verði betur tryggðir við ákvörðun um dvalarleyfi. Þá geta breytingarnar aukið skilvirkni í málsmeðferð í tilteknum leyfaflokkum auk þess að styðja við möguleika til stafrænnar þróunar.

Lagt er til að teknir verði upp tveir nýir dvalarleyfisflokkar, annars vegar tímabundið dvalarleyfi fyrir þolendur alvarlegra vinnumarkaðsbrota og hins vegar sérstakt dvalarleyfi fyrir námsmenn sem dveljast hér á landi í tengslum við þróunarsamvinnuverkefni yfirvalda.

Þá er áformuð breyting á 90. gr. laganna til að mæta kröfum 3. mgr. 10. gr. reglugerðar (ESB) 2019/1157. Tilskipunin snýr að dvalarskírteinum sem gefin eru út til aðstandenda EES- eða EFTA-borgarar sem hafa rétt til dvalar skv. 86. gr. laga u útlendinga.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa alþjóðamála

dmr@dmr.is