Til umsagnar
15.–29.1.2026
Í vinnslu
30.1.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-8/2026
Birt: 15.1.2026
Fjöldi umsagna: 10
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingar á raforkulögum nr. 65/2003.
Markmið lagasetningarinnar er að tryggja að ákvæði laganna samræmist tilskipun ESB nr. 2009/72/EB hvað varðar kröfur gagnvart sjálfstæði Raforkueftirlits.
Með lögum nr. 220/2024 voru gerðar breytingar á raforkulögum nr. 65/2003 í þeim tilgangi að treysta formlegt sjálfstæði Raforkueftirlitsins.
Þörf er á frekari breytingum til að festa í sessi sjálfstæði Raforkueftirlitsins við framkvæmd verkefna sem tilskipun 2009/72/EB kveður á um að séu á hendi sjálfstæðs eftirlitsstjórnvalds. Tryggja þarf að löggjöfin bindi ekki hendur Raforkueftirlitsins við framkvæmd þeirra verkefna. Meðal annars er um að ræða ákvæði sem varða setningu tekjumarka og samþykki á gjaldskrám sérleyfisfyrirtækja, þ.e. Landsnet og dreifiveitur.
Áform þessi eru opin til samráðs til 29. janúar 2026.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa orkumála
urn@urn.is