Til umsagnar
26.1.–17.2.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-3/2026
Birt: 26.1.2026
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Markmið frumvarpsins er aukið samræmi eftirlits, einföldun og skilvirkni, en fyrir liggja greiningar og skýrslur sem sýna skort á samræmi, skýrri ábyrgð og yfirstjórn eftirlits, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra kynntu áform um einföldun regluverks þann 2. sept. sl., sjá hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/09/02/Storfelld-einfoldun-regluverks-ur-ellefu-eftirlitsadilum-i-tvo/
Helstu breytingar frumvarpsins eru að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum verður færð frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfis- og orkustofnunar. Útgáfa starfsleyfis verður miðlæg á vegum fyrrgreindrar stofnunar.
Það athugast að fyrirhugað er að samhliða framlagningu frumvarpsins verði lagt fram frumvarp frá atvinnuvegaráðuneyti vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með matvælum.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa umhverfisgæða
urn@urn.is