Til umsagnar
19.12.2025–15.1.2026
Í vinnslu
16.1.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-256/2025
Birt: 19.12.2025
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2019/881 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja (e. Cybersecurity Act).
Meginmarkmið reglugerðar ESB nr. 2019/881 er annars vegar að tryggja Netöryggisstofnun Evrópusambandsins, sem í daglegu tali er kölluð ENISA, varanlegan starfsgrundvöll og efla starfsemi hennar á sviði netöryggis. Hins vegar er markmið reglugerðarinnar að koma á fót samræmdu, valkvæðu, evrópsku vottunarferli fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni (e. Information and Communication Technology – ICT), til þess m.a. að vernda aðgengi, réttleika eða leynd gagna eða tendrar virkni eða þjónustu sem boðið er upp á með slíkum vörum, þjónustu eða ferlum.
Gerðin er tekin upp í íslenskan rétt með tilvísunarákvæði, sbr. 1. gr. frumvarpsdraga, en í öðrum ákvæðum frumvarpsdraga eru gerðar nauðsynlegar aðlaganir og skilgreiningar til að aðlaga hana að íslensku stofnanaumhverfi og atvinnulífi. Má þar einna helst nefna að Fjarskiptastofu er falið hlutverk landsbundins netöryggisvottunaryfirvalds, sbr. 3. gr., stofnunni veittar heimildir til að útvista tilteknum verkefnum til ytri aðila sér sérstaklega tilgreint að sá sem óskar netöryggisvottunar skuli greiða kostnað sem hlýst af útgáfu vottorðinu, sbr. 4. gr., eftirlitsheimildir stofnunarinnar eru skilgreindar, sbr. 5. gr., stofnuninni er veitt heimilt til að leggja á dag- og stjórnvaldssektir vegna brota gegn ákvæðum laganna, sbr. 12. og 13. gr., auk þess að ráðherra eru veittar reglugerðarheimildir til að kveða á um nánari framkvæmd laganna, sbr. 14. gr.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is