Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.12.2025–8.1.2026

2

Í vinnslu

  • 9.1.–21.9.2026

3

Samráði lokið

  • 22.9.2026

Mál nr. S-251/2025

Birt: 17.12.2025

Fjöldi umsagna: 9

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Jöfnun atkvæðavægis - breyting á kosningalögum nr. 112/2021

Niðurstöður

Dómsmálaráðherra skipaði starfshóp sem skilaði af sér skýrslu og frumvarpsdrögum sem send voru Alþingi til meðferðar. Lagt var til að Alþingi skipaði þingmannanefnd til að fjalla um tillögurnar. Í frumvarpsdrögum er gerð grein fyrir umsögnum sem bárust um áformin.

Málsefni

Með breytingunum er stefnt að því að jafna vægi atkvæða milli kjördæma eins og unnt er og að sem mest samræmi sé á milli fjölda þingmanna og atkvæða sem greidd eru hverjum þingflokki.

Nánari upplýsingar

Umræddar breytingar á kosningalögum hafa það að markmiði að jafna vægi atkvæða á milli kjördæma eins og unnt er sem og að sem mest samræmi sé á milli fjölda þingmanna og þeirra atkvæða sem greidd eru hverjum þingflokki. Breytingarnar verða að rúmast innan ákvæða 31. gr. stjórnarskrárinnar.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

dmr@dmr.is