Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.12.2025–9.1.2026

2

Í vinnslu

  • 10.1.–11.10.2026

3

Samráði lokið

  • 12.10.2026

Mál nr. S-250/2025

Birt: 12.12.2025

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Evrópsk græn skuldabréf (EGBR)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi um þetta efni verði birt í Samráðsgátt í október 2026.

Málsefni

Áformað er að innleiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf.

Nánari upplýsingar

Áformað er að innleiða í íslenskan rétt reglugerð (ESB) 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða upplýsingagjöf vegna skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og vegna skuldabréfa sem tengjast sjálfbærni (European Green Bonds Regulation eða EGBR) með nýjum heildarlögum.

Markmið EGBR er að samræma regluverk um útgáfu grænna skuldabréfa og aðgengi að upplýsingum um sjálfbærnimiðaða fjárfestingarkosti. Græn útgáfa undir auðkenningunni "evrópsk græn skuldabréf" eða "EuGB" er valkvæð. Með innleiðingu og framkvæmd EGBR verður fjárfestum gert auðveldara að greina skuldabréf þar sem ágóði er samræmdur við eða stuðlar að viðurkenndum umhverfismarkmiðum. Kerfi til að skrá og hafa eftirlit með ytri úttektaraðilum evrópskra grænna skuldabréfa er komið á með EGBR.

Reglugerðin kveður einnig á um valkvæð sniðmát fyrir birtingu upplýsinga vegna skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og vegna sjálfbærnitengdra skuldabréfa. EGBR gerir þannig ráð fyrir ólíkum grænum útgáfu- og fjárfestingarkostum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is