Til umsagnar
11.12.2025–9.1.2026
Í vinnslu
10.1.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-249/2025
Birt: 11.12.2025
Fjöldi umsagna: 11
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Umhverfismál
Með fyrirhuguðu frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar (ESB) 2023/1805 FuelEU.
Með fyrirhuguðu frumvarpi til breytinga á hafnalögum nr. 61/2003, lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004, efnalögum nr. 61/2013 og lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar (ESB) 2023/1805 varðandi notkun endurnýjanlegra orkugjafa og lágkolefniseldsneyti í siglingum.
Reglugerðin er hluti af víðtækari aðgerðarpakka framkvæmdarstjórnar ESB sem miðar að því að draga úr losun GHL um 55% hið minnsta fyrir árið 2030 með 1990 sem viðmiðunarár. Meginmarkmið reglugerðarinnar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) í siglingum í ákveðnum skrefum. Þá kveður reglugerðin á um skyldu farþega- og gámaskipa frá og með árinu 2030 til að nota landtengingar meðan þau liggja í höfn eða aðra tækni án losunar. Reglugerðin tengist og styður þannig við aðrar mikilvægar gerðir á borð við viðskiptakerfi með losunarheimildir (ETS), tilskipun um endurnýjanlega orkugjafa (RED og reglugerð um innviði fyrir óhefðbundið eldsneyti (AFIR).
Setja þarf ný lagaákvæði í íslensk lög til innleiðingar á reglugerð þessari, þ. á. m. með setningu reglugerðarheimilda og sérstaks sektargerðarákvæðis.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is