Til umsagnar
9.–23.12.2025
Í vinnslu
24.12.2025–16.2.2026
Samráði lokið
17.2.2026
Mál nr. S-246/2025
Birt: 9.12.2025
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
ein umsögn frá Samtökum iðnaðarins. Í umsögninni er m.a. tekið fram að samtökin telji frumvarpið vera mikilvægt skref í átt að því að efla aðgengi fyrirtækja að fjármagni og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Samtökin styðja frumvarpið með þeim fyrirvara að innleiðing þess stuðli raunverulega að auknu aðgengi fyrirtækja að fjármagn
Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (ECSP).
Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (hér eftir ECSP-reglugerðin eða ECSP).
Með reglugerðinni er leitast við að auðvelda umfangsmikla hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins og auka þannig aðgang frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fyrirtækja í stækkunarferli og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni. ECSP tekur ekki til þeirrar þjónustu sem veitt er eigendum verkefna sem teljast neytendur, þ.e. viðskipta hjá einstaklingum sem starfa að markmiðum sem eru utan slíkra viðskipta, atvinnustarfsemi eða sérgreinar. Þá er með ECSP leitast við að veita fjárfestum nauðsynlegar upplýsingar um hópfjármögnun, þ.m.t. upplýsingar um undirliggjandi áhættur.
Meginefni áformaðs frumvarps er lögfesting ECSP og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, þar á meðal heimildir eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlög við brotum gegn ákvæðum ECSP og heimild ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is