Til umsagnar
4.12.2025–2.1.2026
Í vinnslu
3.1.–19.3.2026
Samráði lokið
20.3.2026
Mál nr. S-241/2025
Birt: 4.12.2025
Fjöldi umsagna: 21
Drög að frumvarpi til laga
Heilbrigðisráðuneytið
Lyf og lækningavörur
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi
Frumvarpsdrögin fela m.a. í sér ákvæði um heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, ávísanaheimildir og breytingar á ákvörðunum um greiðsluþátttöku í lyfjum.
Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti samhljóma frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi (þskj. 289, 257. mál.) en þó með breytingum. Helstu breytingarnar eru tilgreindar í 3.8.1. kafla greinargerðarinnar en þær eru m.a. ákvæði um ávísanaheimild lyfjafræðinga á undanþágulyf, heimild til útvíkkunar á ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, breytingar á gjaldtökuheimildum laga um lækningatæki, nr. 132/2020, eftirlitsgjald skv. 90. gr. lyfalaga gert að lögbundnu framlagi til Lyfjastofnunar og aðrar margþættar breytingar vegna gagnagrunna og kerfa á sviði lyfjamála.
Ítarlega umfjöllun má finna í greinargerð frumvarpsdraganna um þær breytingar sem þar eru lagðar til.
Meðfylgjandi er einnig breytingaskjal sem sýna þær breytingar sem frumvarpsdrögin leggja til að gerðar séu á lyfjalögum, nr. 100/2020.
Sjá hér frumvarp sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi (þskj. 289, 257. mál.) https://www.althingi.is/altext/156/s/0289.html
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnsýslu
hrn@hrn.is