Til umsagnar
4.12.2025–16.1.2026
Í vinnslu
17.1.2026–
Samráði lokið
Mál nr. S-238/2025
Birt: 4.12.2025
Fjöldi umsagna: 7
Drög að reglugerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að nýrri reglugerð um meðhöndlun seyru, í stað núgildandi reglugerðar um sama efni nr. 799/1999.
Endurskoðun reglugerðarinnar er meðal verkefna í aðgerðaáætlun vatnaáætlunar Íslands 2022-2027.
Meðal breytinga sem settar eru fram í reglugerðadrögunum er að skýrari rammi er settur um notkun svartvatns, nýjum skilgreiningum er bætt við reglugerðina og þær eldri endurskoðaðar. Þá eru sett örverumörk við hreinsun seyru og ekki er lengur gert ráð fyrir að seyra sé notuð í þéttbýli. Breytingarnar koma til vegna ábendinga Umhverfis- og orkustofnunar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa umhverfis og orku
urn@urn.is