Til umsagnar
1.–15.12.2025
Í vinnslu
16.12.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-236/2025
Birt: 1.12.2025
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar
Við undirbúning og vinnslu frumvarps til laga um lagareldi hefur atvinnuráðuneytið orðið þess áskynja að mikil þörf sé á endurskoðun á regluverki og framkvæmd á málefnasviði lax- og silungsveiða en margvísleg skörun á sér stað á milli þess og regluverks á málefnasviði lagareldis. Enn fremur hafa stofnanir ráðuneytisins og hagsmunaaðilar bent á nauðsyn þess að taka upp margvísleg atriði á málefnasviði lax- og silungsveiða en núverandi lagaumgjörð er frá árinu 2006.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem hafa það að markmiði að styrkja lagaumgjörð um lax- og silungsveiði og fiskrækt í ám og vötnum. Frumvarpið tekur m.a. til breytinga á lögum um lax- og silungsveiði, 61/2006, lögum um fiskrækt, nr. 58/2006, og lögum um Fiskræktarsjóð, nr. 72/2008.
Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa auðlinda
hjalti.jon.gudmundsson@atrn.is