Til umsagnar
1.–15.12.2025
Í vinnslu
16.12.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-235/2025
Birt: 1.12.2025
Fjöldi umsagna: 15
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um lagareldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.
Í samræmi við ákvæði núgildandi laga um fiskeldi nr. 71/2008, sem gerðu ráð fyrir því að þau skyldi endurskoða eigi síðar en 1. maí 2024, er fyrirhugað að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um lagareldi. Áformin eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, dags. 21. desember 2024, en þar kemur m.a. fram að hún muni styrkja lagaumgjörð fiskeldis til að sporna gegn neikvæðum áhrifum á lífríki og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum.
Áformað er að skerpa á ýmsum ákvæðum núgildandi laga um fiskeldi nr. 71/2008 ásamt því að innleiða ný.
Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið.
Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa auðlinda
hjalti.jon.gudmundsson@atrn.is