Til umsagnar
27.11.–23.12.2025
Í vinnslu
24.12.2025–8.3.2026
Samráði lokið
9.3.2026
Mál nr. S-232/2025
Birt: 27.11.2025
Fjöldi umsagna: 5
Drög að reglugerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Fimm umsagnir bárust um málið. Eftir yfirferð umsagna var ákveðið að viðmiðunargildi vanadíums verði 320 mg/kg. Reglugerðin var birt í B-deild Stjórnartíðinda 26. febrúar 2026, sjá nr. 190/2026, sbr. hlekk hér fyrir neðan.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur til breytingar á reglugerð um mengaðan jarðveg, nr. 1400/2000.
Framkvæmd hefur leitt til gruns um að bakgrunnsgildi nokkurra þungmálma í íslenskum jarðvegi geti verið enn hærri en upplýsingar lágu fyrir þegar reglugerðin var sett. Á það fyrst og fremst við um vanadíum, en einnig kóbalt og kopar.
Reykjavíkurborg og EFLA verkfræðistofa framkvæmdu sýnatökur og efnagreiningar á óröskuðum jarðvegi fyrir utan höfuðborgarsvæðið vorið 2025. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að styrkur vanadíums, kóbalts og kopars í óröskuðum, íslenskum jarðvegi geti verið hærri en viðmiðunarmörk í viðauka reglugerðar um mengaðan jarðveg og hærri en almennt er í jarðvegi á meginlandi Evrópu og í Skandinavíu.
Í ljósi framangreinds eru lagðar til rýmkanir á viðmiðunarmörkum vanadíums, kóbalts og kopars. Einnig eru lögð til viðmiðunarmörk fyrir PFAS 4, að PAH16 sé mælt í stað PAH10, ný viðmiðunargildi varðandi jarðolíu og að króm 6 verði bætt við reglugerðina. Horft er til danskra og sænskra viðmiðunargilda, en PFAS 4 og króm6 verði aðeins mælt þegar grunur liggur á að mengun geti verið til staðar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa umhverfis og orku
urn@urn.is