Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–23.11.2025

2

Í vinnslu

  • 24.11.–29.12.2025

3

Samráði lokið

  • 30.12.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-228/2025

Birt: 16.11.2025

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Æðsta stjórnsýsla

Breyting á lögum um laun forseta Íslands (handhafalaun, forsetaritari, aðstoðarmaður forseta o.fl.)

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 1. desember 2025 (314. mál, 157. löggjafarþing), sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í 5. kafla greinargerðar er fjallað um samráð vegna málsins.

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á handhafalaunum, ákvæði um forsetaritara, heimild til ráðningar sérstaks aðstoðarmanns forseta og áréttuð heimild forsætisráðherra til að setja reglur um tiltekin atriði.

Nánari upplýsingar

Tillögur frumvarpsins eru í meginatriðum þessar:

1.Greiðslur til handhafa forsetavalds.

Lagt er til að fyrirkomulagi á greiðslum til handhafa forsetavalds verði breytt, með hliðsjón af góðum almennum starfskjörum sem og embættisskyldum umræddra embættismanna. Handhafar fara með forsetavald um stundarsakir þegar forseti getur ekki gegnt störfum um sinn, svo sem vegna dvalar erlendis. Handhafarnir eru þrír, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar.

Samkvæmt gildandi lögum fá handhafar nú þriðjung forsetalauna hver í hlutfalli við þann dagafjölda sem forseti er erlendis og kostnaður undanfarinna ára að meðaltali um 10 m.kr. á ári. Hér er hins vegar lagt til að þóknun til handhafa forsetavalds verði föst upphæð, eða kr. 300.000 samanlagt á ári, óháð fjölda daga sem forseti er erlendis eða getur ekki gegnt störfum sínum af öðrum ástæðum. Með þessu móti myndu árlegar heildargreiðslur til handhafa lækka úr 10 m.kr. á ári, að meðaltali, í 300.000 kr. Greiðslur til hvers handhafa um sig myndu því lækka úr rúmlega 3 m.kr. á ári í 100.000 kr., sem svarar til mánaðarlegrar lækkunar úr tæplega 300.000 kr. á mann í rúmlega 8.000 kr. Ekki er gert ráð fyrir að fjárhæðin, kr. 300.000, taki breytingum í hlutfalli við verðlagsbreytingar. Sú lækkun sem hér er lögð til er veruleg og leiðir til þess að handhafagreiðslur verði fremur táknrænar en tengdar við vinnuframlag.

2. Forsetaritari.

Forsetaritari er embættismaður en um starf hans gilda ekki sérstök ákvæði í lögum. Starf forsetaritara er um margt sérstakt og þess eðlis að það á sér ekki beina hliðstæðu innan stjórnkerfisins. Full ástæða er til að staða og verksvið forsetaritara sé afmarkað í lögum, enda gegnir forsetaritari mikilvægu og ábyrgðarmiklu embætti. Gert er ráð fyrir að kveðið verði á um hlutverk og skipunartíma forsetaritara, til samræmis við núverandi stöðu og þróun embættisins á undanförnum árartugum. Þá er lagt til að laun forsetaritara verði ákvörðuð í lögum með fastri krónutölufjárhæð sem og hver sé þar af föst krónutölufjárhæð fyrir álag og yfirvinnu sem starfinu fylgir. Launin verði síðan endurákvörðuð 1. júlí ár hvert miðað við hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins. Þetta er sama fyrirkomulag og gildir um laun ráðuneytisstjóra, dómara og fleiri embættismanna. Tölur þær sem tilgreindar eru í ákvæðinu miðast við laun forsetaritara 1. nóvember 2025, þó þannig að samsetningu þeirra er breytt, til samræmis við t.d. laun ráðuneytisstjóra.

3. Aðstoðarmaður forseta.

Frumvarpið felur í sér að heimilt verði að ráða til starfa við forsetaembættið sérstakan aðstoðarmann sem ekki yrði ráðinn þangað sem almennur sérfræðingur. Starfið yrði ekki auglýsingaskylt og því lyki ekki síðar en þegar viðkomandi forseti léti af embætti. Þau frávik frá almennum reglum um opinbera starfsmenn sem í þessu felast grundvallast á sambærilegum sjónarmiðum og við eiga um aðstoðarmenn ráðherra og ríkisstjórnar. Verkefni beggja snúa að stefnu- eða áherslumálum fremur en faglegum embættisskyldum og óskorað traust er forsenda starfssambandsins.

Af hlutverki forseta leiðir að sá einstaklingur sem embættinu gegnir hefur umtalsvert svigrúm til að stýra áherslum og verkefnum í embættistíð sinni, innan marka stjórnarskrár og laga. Æskilegt má því telja að forseti hafi heimild til að velja sér til ráðgjafar sérstakan aðstoðarmann sem hafi þá hæfileika og reynslu sem henti og njóti að auki fyllsta persónulegs trausts forseta.

4. Öryggismál æðstu stjórnar, staðganga ráðherra og rafrænar undirritanir.

Forsætisráðherra er forystumaður Stjórnarráðsins og ríkisstjórnarinnar á grundvelli þeirra heimilda til skipunar ráðherra og verkstjórnar ríkisstjórnar sem honum eru veittar í stjórnarskránni, með atbeina forseta. Samhæfingarhlutverk forsætisráðherra leiðir af stöðu hans sem forystumanns ríkisstjórnarinnar.

Í frumvarpinu er lagt til að framangreint forystu- og samhæfingarhlutverk forsætisráðherra þvert á málefnasvið ráðuneyta verði áréttað í tilteknum atriðum. Tillögur frumvarpsins fela hvorki í sér auknar heimildir forsætisráðherra né heldur tæmandi talningu þeirra. Markmiðið er einkum að skapa skýrari forsendur fyrir samhæfingu, á grundvelli gildandi laga og að höfðu samráði við hlutaðeigandi stjórnvöld á viðkomandi málefnasviðum. Sérstaklega er horft til öryggismála æðstu stjórnar, staðgöngu ráðherra og rafrænna undirritana.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnskipunar

for@for.is