Til umsagnar
31.10.–17.11.2025
Í vinnslu
18.11.–14.12.2025
Samráði lokið
15.12.2025
Mál nr. S-221/2025
Birt: 31.10.2025
Fjöldi umsagna: 2
Annað
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Skýrslan verður send til nefndar Sameinuðu þjóðanna um afnám alls kynþáttamisréttis og síðan birt á vef dómsmálaráðuneytisins, bæði á ensku og íslensku.
Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um drög að skýrslu Íslands um alþjóðasamninginn um afnám alls kynþáttamisréttis.
Tekin hafa verið saman drög að 24. til 27. skýrslu Íslands um framkvæmd alþjóðasamningsins um afnám alls kynþáttamisréttis (e. Convention on the Elimination of Racial Discrimination). Skrifstofa jafnréttismála í dómsmálaráðuneytinu hélt utan um skrif skýrslunnar í samstarfi við stýrihóp Stjórnarráðsins um mannréttindi, en í þeim hópi sitja fulltrúar allra ráðuneyta.
Skýrslan tekur til áranna 2018 til ágúst 2025, en leitast er við að gefa sem réttasta mynd af því hvernig samningnum hefur verið framfylgt á því tímabili. Sérstaklega er tekið mið af þeim atriðum sem nefndin um afnám alls kynþáttamisréttis lagði áherslu á í lokaathugasemdum sínum til Íslands frá 18. september 2019.
Óskað er eftir umsögnum og ábendingum um efni skýrslunnar. Jafnframt eru hagsmunaaðilar hvattir til þess að senda viðbótarskýrslur um framkvæmd samningsins beint til nefndarinnar, en nánari upplýsingar um það ferli má nálgast hér: https://www.ohchr.org/en/treaty-bodies/cerd/information-civil-society-ngos-and-nhris.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa jafnréttismála
dmr@dmr.is