Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.10.–10.11.2025

2

Í vinnslu

  • 11.11.2025–24.8.2026

3

Samráði lokið

  • 25.8.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-218/2025

Birt: 28.10.2025

Fjöldi umsagna: 12

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (framkvæmd)

Niðurstöður

Tólf umsagnir bárust um frumvarpsdrögin í Samráðsgátt stjórnvalda. Við endanlega gerð frumvarpsins var tekið mið af þeim sjónarmiðum sem þar komu fram. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 25. nóvember 2025 sem 296. mál á 157. löggjafarþingi, þskj. 411, og varð að lögum nr. 27/2026. Gerð er grein fyrir umsögnum í greinargerð með frumvarpinu sem hjálagt fylgir.

Málsefni

Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki einkum með það að markmiði að skýra framkvæmd laganna og auka skilvirkni

Nánari upplýsingar

Í frumvarpsdrögunum er í fyrsta lagi lagt er til að við mat á því hvort fjárhagsvandi sé til staðar, þá skuli jafnframt horfa jafnt til fjárhagsstöðu nýsköpunarfyrirtækis og móðurfélags þess, ef það er til staðar. Er þessi breyting í samræmi við túlkun Evrópudómstólsins í málum er varða ríkisaðstoð og byggja á regluverki sem innleitt hefur verið hér á landi með EES samningnum og viðaukum með honum. Í öðru lagi er lagt til að í lögunum komi fram hámarkshlutfall þess kostnaðar sem fyrirtæki getur talið fram sem styrkhæfan kostnað og felst í aðkeyptri vinnu fyrirtækisins. Er lagt til að hlutfallið sé 80% af heildar styrkhæfum kostnaði ársins hjá viðkomandi fyrirtæki. Í þriðja lagi er lagt til að gildistími staðfestingar á verkefni gildi í tvö ár, í stað eins, í þeim tilvikum þegar nýsköpunarfyrirtæki hefur eingöngu með höndum starfsemi sem snýr að rannsóknum og/eða þróun sem staðfestingin snýr að og árlegur kostnaður er ekki umfram 125 milljónir kr.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

skattaskrifstofa

fjr@fjr.is