Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.10.–8.11.2025

2

Í vinnslu

  • 9.11.2025–7.1.2026

3

Samráði lokið

  • 8.1.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-217/2025

Birt: 28.10.2025

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald

Niðurstöður

Frumvarp var samþykkt á Alþingi 18. desember 2025.

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytinga á lögum um úrvinnslugjald.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002. Í frumvarpinu er gerður enn skýrari greinarmun á úrvinnslugjaldi sem innheimt er við nýskráningu ökutækja, sem nær þá til ábyrgðar framleiðenda og innflytjenda á úrvinnslu ökutækis, og hins vegar á skilagjaldi á skráningarskyld ökutæki sem innheimt er reglulega af skráðum eiganda ökutækis, sem á móti á rétt á að fá endurgreitt skilagjald fyrir ökutæki þegar því er skilað á móttökustöð til endurnýtingar og förgunar. Jafnframt er lagt til að kveðið verði skýrar á um hlutverk úrvinnslugjaldsins í því að ná tölulegum markmiðum um undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu, söfnun og förgun úr sér genginna, skráningarskyldra ökutækja í samræmi við skyldur Úrvinnslusjóðs þar að lútandi.

Á seinustu þremur árum hafa verið gerðar breytingar á tollskránni með auglýsingum, um breytingu á viðauka I við tollalög, nr. 88/2005, nr. 132/2022, nr. 8/2023, nr. 76/2023, nr. 95/2023, nr. 14/2024, nr. 33/2024 og nr. 143/2024. Nauðsynlegt er að uppfæra lög um úrvinnslugjald reglulega með hliðsjón af breytingum á tollskrá og eru því í frumvarpinu lagðar til breytingar á lögunum sem felast í endurskoðun á tollskrárnúmerum og uppfærslu á viðaukum við lögin sem leiða af fyrrgreindum auglýsingum.

Með frumvarpinu eru einnig lagðar til uppfærslur á reiknilíkani viðauka XVIII við lögin sem byggja á reynslu síðustu tveggja ára. Lagðar eru til breytingar sem miða að því að fjölga valmöguleikum fyrir meginsöluumbúðir tiltekinna tollskrárnúmera ásamt því að gera viðeigandi lagfæringar á hlutfallstölum. Með þessum breytingum er ætlað að tryggja að álagning úrvinnslugjalds á umbúðir nái til flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum og í tilviki skilagjaldsskyldra drykkjarvöruumbúða sem bera ekki úrvinnslugjald. Þá er gerð tillaga um að ákvæði til bráðabirgða V sem kom inn með lögum nr. 101/2024 verði framlengt og uppfært með hliðsjón af breytingum á tollskrá. Regluleg endurskoðun og uppfærsla líkansins er mikilvæg til að álagning úrvinnslugjalda sé sem réttust hverju sinni til að standa undir kostnaði við úrvinnslu umbúðaúrgangs og endurspegla betur raunverulegt magn umbúða sem úrvinnslugjald er lagt á sem hefur mikla þýðingu fyrir úrgangstölfræði og stöðu gagnvart tölulegum markmiðum um árangur í úrgangsmálum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfis og orku

trausti.hermannsson@urn.is