Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.10.–6.11.2025

2

Í vinnslu

  • 7.11.2025–8.1.2026

3

Samráði lokið

  • 9.1.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-214/2025

Birt: 23.10.2025

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur)

Niðurstöður

Ein umsögn barst frá Samtökum verslunar og þjónustu. Í umsögn sinni beina samtökin því til stjórnvalda að ganga úr skugga um hvaða afleiðingar það kann að hafa fyrir innlenda aðila taki frumvarp þetta gildi óbreytt. Þá telja samtökin nauðsynlegt að meta líkindi þess að innlendir aðilar verði fyrir viðbótarkostnaði vegna málareksturs utan Íslands. Þar sem engar viðurkenndar stofnanir hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og hafa verið viðurkenndar á grundvelli beiðni frá EFTA-ríki er ekki talið að lagabreytingin hafi afleiðingar fyrir innlenda aðila.

Málsefni

Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur).

Nánari upplýsingar

Með frumvarpi um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar (EB) nr. 391/2009.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit er hluti af endurútgáfu tilskipunar ráðsins 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda. Sú tilskipun er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 142/2004 um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun. Þar sem eldri tilskipun hefur verið breytt í veigamiklum atriðum var ákveðið að endurútgefa Evrópugerðina til að skýra og styrkja ýmis efnisatriði.

Helstu nýmæli reglugerðar (EB) nr. 391/2009 eru breytingar á valdi framkvæmdastjórnar ESB, eða Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tilviki EFTA-ríkjanna, til að leggja á sektir og févíti ef viðurkenndar stofnanir (stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og hafa verið viðurkenndar til þeirra starfa) uppfylla ekki þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerðinni. Þessar ákvarðanir ESA yrðu svo bornar undir EFTA-dómstólinn til endurskoðunar, en ekki íslenska dómstóla. Vegna þessara ákvæða þarf lagabreytingu til að hægt sé að innleiða gerðina.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

katrin.palsdottir@irn.is