Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.–24.10.2025

2

Í vinnslu

  • 25.10.–21.12.2025

3

Samráði lokið

  • 22.12.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-208/2025

Birt: 17.10.2025

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Örorka og málefni fatlaðs fólks

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu (hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris, aldursviðbót og vinnsla persónuupplýsinga)

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. nóvember 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim. Alls bárust þrjár umsagnir í samráðsgáttina sem teknar voru til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á efni frumvarpsins, m.a. í ljósi stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarflokkanna frá 21. desember 2024.

Málsefni

Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigðisþjónustu.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um almannatryggingar og lögum um heilbrigisþjónustu.

Lagt er til að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris í áföngum upp í 60 þúsund krónur á mánuði á yfirstandandi kjörtímabili. Jafnframt er lagt til að almennt frítekjumark félagslegs viðbótarstuðnings aldraðra fylgi almennu frítekjumarki ellilífeyrisþega og er því í frumvarpinu einnig lögð til breyting á lögum um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða, nr. 74/2020, í því sambandi.

Lagt er til að hafi ellilífeyrisþegi uppfyllt skilyrði aldursviðbótar örorkulífeyrisþega eða hlutaörorkulífeyrisþega skv. 29. gr. laga um almannatryggingar fram til ellilífeyrisaldurs skuli viðkomandi áfram eiga rétt á aldursviðbót skv. 2. mgr. 29. gr. og að aldursviðbótin skuli þá bætast við fjárhæð ellilífeyris. Er þannig gert ráð fyrir að aldursviðbót falli ekki niður hjá viðkomandi þegar hann nær ellilífeyrisaldri, að skilyrðum uppfylltum. Einnig er gert er ráð fyrir að þeir sem hafa náð ellilífeyrisaldri samkvæmt gildandi lögum en uppfylltu skilyrði eldri laga til greiðslu aldursviðbótar þar sem þeir hafa verið metnir til a.m.k. 75% örorku fyrir 44 ára aldur fái greidda aldursviðbót.

Enn fremur er lagt til að gera tilteknar breytingar á lögum um almannatryggingar í tengslum við framkvæmd á nýju örorku- og endurhæfingarkerfi sem tók gildi 1. september 2025, svo sem í því skyni að tryggja skýrari lagastoð fyrir vinnslu og miðlun persónuupplýsinga sem og tölfræðivinnslu.

Jafnframt er lagt til að gera breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, þannig að heilbrigðisstofnanir sem veita þjónustu í tengslum við endurhæfingu einstaklinga sem þurfa þjónustu fleiri en eins kerfis skuli eiga samstarf við aðra þjónustuaðila um samhæfingu þjónustu en með heilbrigðisstofnunum er í þessu samhengi einnig átt við heilsugæslustöðvar.

Loks er lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að stjórn sé skipuð yfir Tryggingastofnun.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar

frn@frn.is