Til umsagnar
18.11.–18.12.2025
Í vinnslu
19.12.2025–24.3.2026
Samráði lokið
25.3.2026
Mál nr. S-202/2025
Birt: 18.11.2025
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Engar umsagnir bárust og voru reglugerðirnar undirritaðar, sjá hlekk.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til umsagnar breytingar á reglugerðum er varða erfðabreyttar lífverur.
Lagt er til að sett verði ný reglugerð um ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur, í stað eldri reglugerðar um sama efni nr. 68/1998. Þá eru lagðar til breytingar á reglugerð um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera, nr. 728/2011, sem snúa m.a. að upplýsingagjöf Umhverfis- og orkustofnunar til ESA og trúnaðarmeðferð upplýsinga.
Breytingarnar koma til vegna ábendinga Umhverfis- og orkustofnunar og ráðgjafanefndar um erfðabreyttar lífverur, en talið var tímabært að skerpa á og uppfæra ákvæði framangreindra reglugerða.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa umhverfis og orku
urn@urn.is