Til umsagnar
13.–27.10.2025
Í vinnslu
28.10.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-201/2025
Birt: 13.10.2025
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Lagt er til að heimilt verði að skrá ríkisborgara þriðju ríkja í Schengen-upplýsingakerfið sem hafa tengsl við hryðjuverk eða önnur alvarleg afbrot að tillögu Löggæslusamvinnustofnunar Evrópu.
Dómsmálaráðuneytið óskar umsagna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Schengen-upplýsingakerfið, nr. 51/2021.
Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði heimild til að skrá upplýsingar um ríkisborgara þriðju ríkja sem tengjast hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum í Schengen-upplýsingakerfið að tillögu Löggæslusamvinnustofnunar Evrópu (Europol). Þá er einnig mælt fyrir um aðgerðir sem heimilt er að grípa til á grundvelli slíkra skráninga.
Schengen-upplýsingakerfið gegnir lykilhlutverki í samvinnu um öryggis- og löggæslumál. Í ljósi þess að alvarleg afbrot og hryðjuverk eru framin þvert á landamæri skipta upplýsingar sífellt meira máli í baráttunni gegn brotastarfsemi. Löggæslusamvinnustofnun Evrópu hefur það meginverkefni að miðla og greina upplýsingar ásamt því að vera samstarfsvettvangur aðildarríkja um aðgerðir á sviði skipulagðrar brotastarfsemi og hryðjuverka. Upplýsingum um ríkisborgara sem tengjast hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum er deilt með Löggæslusamvinnustofnunni sem vinnur upplýsingarnar og deilir greiningarniðurstöðum sínum með aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Nauðsynlegt þykir að veita notendum Schengen-upplýsingakerfisins, líkt og landamæravörðum og lögreglu, aðgang að verðmætum upplýsingum sem Löggæslusamvinnustofnuninni eru veittar frá þriðju ríkjum og alþjóðastofnunum, en þessir endanlegu notendur upplýsingakerfisins hafa ekki alltaf aðgang að þessum mikilvægu gögnum.
Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1190 sem gerir breytingar á reglugerð 2018/1862 og kveður á um þessar skráningar. Innleiðing gerðarinnar er liður í alþjóðlegum skuldbindingum Íslands sem þátttakanda í Schengen-samstarfinu og mun efla getu lögreglu til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi, jafnt á landamærum sem og innanlands, með auknum aðgangi að upplýsingum í Schengen-upplýsingakerfinu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa alþjóðamála
dmr@dmr.is