Til umsagnar
2.–16.10.2025
Í vinnslu
17.10.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-194/2025
Birt: 2.10.2025
Fjöldi umsagna: 33
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið kynnir til samáðs drög að breytingu á reglugerð um ökuskírteini nr. 83/2011.
Ráðuneytið birtir hér drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2011. Helstu breytingar sem lagðar eru til með reglugerðardrögunum eru eftirfarandi:
• Lagt er til að réttindi til aksturs dráttarvélar verði þrepaskipt. Á grundvelli almennra ökuréttinda verður heimilt að aka dráttarvél sem er allt að 3.500 kg. Aukin ökuréttindi, og þar með hærri lífaldur, mun því þurfa til að stjórna þyngri dráttarvélum eða dráttarvélum með þyngri eftirvagn, í samræmi við það sem gildir um önnur þung ökutæki.
• Breyting er gerð á skilgreiningu fastrar búsetu og kveðið er með skýrari hætti á um gildistíma erlends ökuskírteinis hér á landi.
• Tekið er skýrt fram að endurmenntun atvinnubílstjóra þurfi að ljúka fyrir hverja endurnýjun.
• Kveðið er á um að umsækjandi um ökuskírteini skuli ljúka verklegu prófi áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að hann stóðst bóklegt próf.
• Kveðið er á um fimm ára gildistíma starfsleyfis ökuskóla.
• Felld er brott krafa um að í sjálfskiptri kennslubifreið skuli í stað fótstigs fyrir kúplingu vera gírstöng eða annar slíkur búnaður svo að ökukennari geti rofið aflrás.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is