Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.9.–14.10.2025

2

Í vinnslu

  • 15.10.2025–16.8.2026

3

Samráði lokið

  • 17.8.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-188/2025

Birt: 30.9.2025

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Breyting á lögum um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi

Niðurstöður

Áform um lagasetninguna auk mats á áhrifum voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 12.–22. september 2025 (mál nr. S-165/2025) og bárust fimm umsagnir. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging gildistíma o.fl.) voru til samráðs 30. september til 14. október 2025. Í greinargerð frumvarps er fjallað um athugasemdir sem bárust í samráði og viðbrögð við þeim. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. nóvember 2025 og samþykkt 17. desember 2025.

Málsefni

Fyrirhugað er að framlengja lög um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar en lögin renna út um áramót.

Nánari upplýsingar

Lög nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi falla úr gildi í lok þessa árs og því þörf á framlengingu kerfisins. Markmið endurgreiðslukerfisins er að stuðla að eflingu innlendrar menningar og kynningar á sögu landsins og náttúru með tímabundnum stuðningi við kvikmyndir og sjónvarpsefni sem framleitt er hér á landi. Lögð er áhersla á framlengingu endurgreiðslukerfisins til þriggja ára. Samtímis framlengingu verður starfshópi falin heildarendurskoðun laganna og að leggja fram tillögur að frekari breytingum á kerfinu fyrir 1. júlí 2026.

Helstu breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni eru:

1. Lagt er til að skilgreina með skýrari hætti hugtökin um heildarframleiðslukostnað og framleiðslukostnað og hvað falli þar undir.

2. Lagt er til að leggja sérstaka áherslu á framleiðslu barnaefnis. Barnaefni á undir högg að sækja þar sem það er dýrara í framleiðslu, fjármögnun erfiðari og dreifingarmöguleikar á íslensku leiknu barnaefni minni. Barnaefni gegnir lykilhlutverki í menntun, þroska og sjálfsmynd barna. Framleiðsla barnaefnis er því mikilvæg í menningarlegu og samfélagslegu samhengi. Því er lagt til að barna- og ungmennaefni geti sótt um 35% hlutfall endurgreidds framleiðslukostnaðar.

3. Lagt er til að í verkefnum sem hafa áætlaða eða endanlega heildarendurgreiðslu yfir 300.000.000 kr. verði umsókn um útborgun, hvort sem um ræðir að hluta eða fulla endurgreiðslu, ekki heimil fyrr en í fyrsta lagi 18 mánuðum eftir að umsókn um vilyrði var lögð fram.

4. Lagt er til að aðalframleiðslutímabil verkefnis skuli hefjast innan eins árs frá útgáfu vilyrðis um endurgreiðslu. Umsækjanda verði gert að tilkynna umsýsluaðila um upphaf aðalframleiðslutímabils. Hafi aðalframleiðslutímabil ekki hafist innan árs frá útgáfu vilyrðis, og ekki hafi borist rökstudd beiðni um framlengingu, fellur vilyrðið sjálfkrafa úr gildi. Eftir sem áður geta umsækjendur sótt um vilyrði að nýju, sé hið eldra vilyrði fallið úr gildi.

5. Að loki er brugðist við athugasemdum ESA við úttekt á kerfinu árin 2023-2024. Með breytingunni er brugðist við athugasemd ESA um að Ísland skuli setja í lögin vísun til GBER reglugerðarinnar og til viðeigandi ákvæðis hennar en til bráðabirgða var brugðist við framangreindri athugasemd með breytingu á reglugerð nr. 450/2017 og er vísunin nú lögfest, líkt og kröfur ESA gera ráð fyrir.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (8)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa menningar og skapandi greinar

mnh@mnh.is