Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.9.–13.10.2025

2

Í vinnslu

  • 14.10.–10.12.2025

3

Samráði lokið

  • 11.12.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-185/2025

Birt: 26.9.2025

Fjöldi umsagna: 2

Áform um lagasetningu

Forsætisráðuneytið

Æðsta stjórnsýsla

Áform um breytingar á lögum um laun forseta Íslands o.fl

Niðurstöður

Drög að frumvarpi voru birt í Samráðsgáttinni, sjá tengt mál. Búið er að leggja frumvarpið fram á Alþingi (314. mál á 157. löggjafarþingi).

Málsefni

Áform þessi varða rafrænar undirritanir á vettvangi ríkisráðs, breytt fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds, sérstakan aðstoðarmann forseta og launaákvörðun forsetaritara.

Nánari upplýsingar

Þau úrlausnarefni sem hér eru til umfjöllunar eru í meginatriðum fjórþætt og varða í fyrsta lagi rafrænar undirritanir ráðherra og forseta Íslands á vettvangi ríkisráðs sem fyrirhugað er að setja skorður um, í öðru lagi fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds sem gert er ráð fyrir að breytingar verði gerðar á til lækkunar, í þriðja lagi heimild til ráðningar sérstaks aðstoðarmanns sitjandi forseta með tilteknum frávikum frá almennum reglum um opinbera starfsmenn, svo sem um auglýsingaskyldu og ráðningarlok, og í fjórða lagi launaákvörðun forsetaritara, til samræmis við almennt fyrirkomulag launaákvörðunar aðila sem áður heyrðu undir kjararáð.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnskipunar

for@for.is