Til umsagnar
25.9.–8.10.2025
Í vinnslu
9.10.2025–7.1.2026
Samráði lokið
8.1.2026
Mál nr. S-183/2025
Birt: 25.9.2025
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Tvær umsagnir bárust um áformin frá Samtökum verslunar og þjónustu og Íslandsspilum sf. og er brugðist við þeim í sérstöku niðurstöðuskjali. Fyrirhugað er að kynna frumvarpsdrög í samráðsgáttinni.
Áformað er að leggja fram frumvarp þar sem lagðar verða til nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum á sviði skatta, gjalda, tolla og fleiri laga.
Meginefni fyrirhugaðs frumvarps mun fela í sér nauðsynlegar breytingar á ýmsum lögum sem flest eru á sviði skatta og gjalda. Áformað frumvarp mun hafa áhrif á bæði einstaklinga og lögaðila en meðal markmiða þess verður m.a. aukin skilvirkni í framkvæmd.
Breytingar í tengslum við eftirfarandi eru m.a. fyrirhugaðar:
• Réttur aðila samkvæmt útgöngusamningi Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu verði tryggður í lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, m.a. að því er varðar barnabætur.
• Bráðabirgðaákvæði LXVII í lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem kveður á um hærra hlutfall og fjárhæð frádráttar einstaklinga vegna hlutabréfakaupa, framlengt um tvö ár.
• Frestur til greiðslu á innviðagjaldi lengdur úr 7 dögum í 15 daga.
• Framlenging á ákvæði til bráðabirgða EE í búvörulögum, nr. 99/1993, um tímabil lægri tolla á grænmeti.
• Happdrætti Háskóla Íslands verði undanþegið skattskyldu af fjármagnstekjum.
• Hækkun á fjárhæð frítekjumarks barna.
• Mat á virði hlutabréfa til ákvörðunar erfðafjárskatts.
• Styrking ákvæða um gjalddaga og álagningu áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalds hjá tollfrjálsum verslunum.
• Framlenging á bráðabirgðaheimild til að reka blandaða tollvörugeymslu.
• Niðurlagning eftirlitsnefndar með framkvæmd viðbótar- og stuðningslána til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.
• Heimild til beitingar verndarráðstafana.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa skattamála
fjr@fjr.is