Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.9.–13.10.2025

2

Í vinnslu

  • 14.10.2025–

Samráði lokið

Mál nr. S-178/2025

Birt: 22.9.2025

Fjöldi umsagna: 14

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun vegna vindorku og verndarflokks áætlunarinnar

Málsefni

Lagðar verða til breytingar á lögum til að skýra reglur um meðhöndlun vindorku innan rammaáætlunar auk breytinga sem miða að almennari vernd virkjunarkosta í verndarflokki hennar.

Nánari upplýsingar

Í lögum nr. 48/2011, um verndar og orkunýtingaráætlun, er kveðið á um að allir virkjunarkostir, 10 MW og stærri, skuli fá umfjöllun í rammaáætlun þar sem þeim er raðað í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Þrátt fyrir að virkjunarkostir í vindorku heyri undir lögin og ekki sé gert ráð fyrir að breyta því má færa fyrir því rök að aðlaga þurfi lögin betur að virkjunarkostum í vindorku. Gert er ráð fyrir að settar verði tilteknar sérreglur að þessu leyti enda eru þessir virkjunarkostir að mörgu leyti frábrugðnir hinum hefðbundnu virkjunarkostum vatnsorku og jarðvarma. Annars vegar verði settar almennar takmarkanir á hagnýtingu vindorku á ákveðnum mjög viðkvæmum svæðum landsins, byggðar á hlutlægum viðmiðum og hins vegar að virkjunarkostir í vindorku verði undanþegnir þeirri meginreglu laganna að þeir séu bindandi gagnvart skipulagsvaldi sveitarfélaga. Einnig eru áform um að skerpa á vernd þeirra landsvæða sem falla í verndarflokk áætlunarinnar þannig að byggt verði á þeirri almennu flokkum friðlýstra svæða sem finna má í VIII. kafla l. nr. 60/2013, um náttúruvernd eins og kostur er, í stað þess að svæðin í verndarflokki áætlunarinnar séu einungis friðlýst gagnvart orkuvinnslu.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa loftslags og náttúru

urn@urn.is