Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.9.–1.10.2025

2

Í vinnslu

  • 2.10.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-173/2025

Birt: 17.9.2025

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Utanríkisráðuneytið

Umhverfismál

Frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja

Málsefni

Frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

Nánari upplýsingar

Samningi þeim sem í daglegu tali er vísað til sem BBNJ-samningsins (BBNJ er skammstöfun sem á ensku merkir líffræðileg fjölbreytni utan lögsögu ríkja eða Biodiversity beyond national jurisdiction), er ætlað að útfæra skyldur ríkja til að vernda og varðveita umhverfi hafsins með regluverki og heildstæðu stjórnkerfi undir hafréttarsamningnum, til að bregðast við tapi líffræðilegrar fjölbreytni hafsins og hnignun sjávarvistkerfa, sem stafa einkum af áhrifum loftslagsbreytinga, súrnun sjávar, mengunar í hafi og ósjálfbærrar nýtingar. Í honum er lögð áhersla á að virða það jafnvægi réttinda, skyldna og hagsmuna sem hafréttarsamningurinn sjálfur mælir fyrir um.

Frumvarpsdrögin eru sett inn í samráðsgáttina í framhaldi af samráði um áform um lagasetningu, sem skilaði eindregnum hvatningum til þess að Ísland fullgildi BBNJ-samninginn hratt og örugglega enda mikilvægir hagsmunir undir.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (48)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Laga- og stjórnsýsluskrifstofa

svanhildur.steinarsdottir@utn.is