Til umsagnar
18.9.–2.10.2025
Í vinnslu
3.10.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-172/2025
Birt: 19.9.2025
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um frumvarp til innleiðingar á reglugerð (EU) 2023/2405
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2405 frá 18. október 2023 um að tryggja jöfn samkeppnisskilyrði fyrir sjálfbæra flutninga í lofti (framtaksverkefnið „ReFuelEU Aviation“) er hluti af stefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sjálfbærni, Sustainable and Smart Mobility Strategy . Með stefnunni er sett það markmið að stuðla að notkun sjálfbærs flugeldsneytis og stuðla með því að því að loftslagsmarkmið ESB fyrir árið 2030 verði náð. Aðgerðirnar miða að því að auka framboð og notkun á sjálfbæru flugeldsneyti í stað hefðbundins jarðefnaeldsneytis.
Reglugerðin miðar að því að tryggja jafna stöðu flugaðila á innri markaði ESB og samtímis setja reglur til þess fallnar að auka notkun sjálfbærs eldsneytis.
Reglugerðin kemur til viðbótar tilskipun (ESB) 2018/2001 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (RED II) sem enn hefur ekki verið tekin upp í EES samninginn og fellur undir EES viðauka um orkumál.
Markmið reglugerðar 2023/2405 er að draga úr losun og ná kolefnahlutlausu hagkerfi fyrir árið 2050. Markmiðið er einnig að tryggja jafna aðstöðu fyrir sjálfbærar flugsamgöngur. Með reglugerðinni eru settar fram kröfur til rekstraraðila flugvalla, flugrekenda og aðildarríkjanna um að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að framfylgja kröfum sem stuðla að sjálfbærum flugsamgöngum.
Með reglugerðinni er mælt fyrir um samræmdar reglur svo að forsendur séu fyrir samkeppni á innri markaðnum í flugmálum en auka jafnframt notkun á sjálfbæru flugeldsneyti hjá flugrekendum og stuðla að sjálfbærri flugstarfsemi. Gerðar eru gerðar kröfur til þeirra sem reka stærri flugvelli, flugrekenda í flutningaflugi og aðildarríkjanna sjálfra um að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að framfylgja kröfum sem stuðla að sjálfbærum flugsamgöngum.
Áformin eru opin til samráðs til og með 2. október nk.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa umhverfis- og orku
erla.sigridur.gestsdottir@urn.is