Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 15.–29.9.2025

2

Í vinnslu

  • 30.9.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-168/2025

Birt: 15.9.2025

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi. Breyting á lögum um faggildingu o.fl. og lögum um staðla og Staðlaráð Íslands

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á lögum um faggildingu o.fl. til að uppfæra úrelt ákvæði til samræmis við gildandi framkvæmd, EES-reglur á viðkomandi sviði og ábendingar EA í nýlegu jafningjamati.

Nánari upplýsingar

Lagðar eru til ýmsar breytingar á lögum um faggildingu o.fl., sem ætlað er að treysta grunn faggildingarstarfseminnar og uppfæra lögin með tilliti til gildandi evrópulöggjafar á sviðinu, sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt, og þeirrar framkvæmdar og hugtakanotkunar sem tíðkast í starfseminni.

Í fyrsta lagi er lagt til að við lögin bætist markmiðsákvæði, þar sem fram komi að þeim sé ætlað að skapa faggildingarstarfsemi traustan grundvöll með aðkomu stjórnvalda sem og einkaaðila og til samræmis við hlutverk faggildingar á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

Í öðru lagi eru skilgreiningar hugtaka uppfærðar til samræmis við reglugerð (EB) 765/2008 og hugtakanotkun eins og hún hefur þróast í faggildingarstarfsemi á Íslandi undanfarna áratugi.

Í þriðja lagi lögð til breyting á 3. gr. laganna, um faggildingarsvið Hugverkastofunnar, sem ætlað er að skýra betur eðli þess og hlutverk sem faglega og fjárhagslega sjálfstæðrar faggildingarstofnunar í skilningi reglugerðar (EB) 765/2008. Lagt er til að skýrt verði fram tekið að faggildingarsvið, sem gengur í daglegu tali undir skammstöfuninni ISAC (Icelandic Service for Accreditation), sé hin íslenska faggildingarstofnun og sem slík eini aðilinn sem annast faggildingu hér á landi. Þá er lagt til að skýrt verði kveðið á um faglegt og fjárhagslegt sjálfstæði ISAC og að tryggja skuli starfshæfni með framlagi úr ríkissjóði til viðbótar við sértekjur af gjaldskyldri þjónustu, sbr. 9. mgr. 4. gr. reglugerðar (EB) 765/2008. Þá er lagt til að ISAC verði heimilt að setja á stofn nefndir, svo sem ákvörðunarnefnd um faggildingu og ráðgjafarnefnd, til að annast ákveðna þætti í faggildingarstarfsemi í umboði sviðsins. Í framkvæmd hefur ISAC sjálft skipað ákvörðunarnefnd um faggildingu, en ráðherra hefur frá árinu 2018 skipað faggildingarráð, vettvang til samráðs og ráðgjafar um málefni faggildingar. Með breytingunni verður sú hefð að ráðherra skipi slíkt ráð lögð niður og heimild til að skipa ráðið færð til ISAC. Til að skerpa enn frekar á faglegu sjálfstæði ISAC gagnvart ráðherra málaflokksins eru að auki lagðar til breytingar sem annars vegar fela ISAC að setja almennar reglur um faggildingarstarfsemi í stað ráðherra (4., 7., 8. og 9. gr.) og hins vegar kveða á um að ákvarðanir ISAC um faggildingu séu endanlegar á stjórnsýslustigi (5. gr.).

Í fjórða lagi er lögð til breyting á gjaldskrárákvæði laganna. Breytingin er ætluð til einföldunar, en gjaldskráruppfærslur hafa reynst torveldar í tíð gildandi ákvæðis. Lagt er til að kveðið verði á um að gjaldskrá skuli birt á vef ISAC, auk þess að birtast í B-deild Stjórnartíðinda, og að gjaldskrá verði eftir sem áður háð samþykki ráðherra.

Í fimmta lagi er lagt til að tekið verði fram að tilkynntir aðilar skuli uppfylla kröfur faggildingar, sbr. nánari umfjöllun um 13. gr. frumvarpsins. Aðrar breytingar á faggildingarlögum eru orðalagsbreytingar til samræmis við breytta hugtakanotkun frá gildistöku laganna.

Auk breytinga á lögum um faggildingu o.fl. eru í frumvarpinu lagðar til tvær breytingar á lögum um staðla og Staðlaráð Íslands, nr. 36/2003. Annars vegar er um að ræða breytingu á 1. mgr. 4. gr. laganna, þar sem tekið er fram í gildandi lögum að aðild að Staðlaráði sé öllum heimil. Orðalagið þykir villandi og er lagt til að fram verði tekið að aðild að ráðinu sé heimil íslenskum lögaðilum. Hins vegar er lögð til breyting á fyrri málslið 7. gr. laganna, um fjármögnun Staðlaráðs. Í gildandi lögum kemur fram að hluti af gjaldstofni tryggingagjalds renni til Staðlaráðs. Það fyrirkomulag var lagt af með lögum nr. 164/2011, um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þau lög breyttu m.a. lögum um tryggingagjald en láðst hefur að gera sambærilega breytingu á lögum um staðla og Staðlaráð Íslands. Er breytingin í 13. gr. frumvarpsins því lögð til nú til leiðréttingar.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

steindor.dan.jensen@atrn.is