Til umsagnar
5.–19.9.2025
Í vinnslu
20.9.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-161/2025
Birt: 5.9.2025
Fjöldi umsagna: 5
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Fyrirhugað er að endurskoða ýmis atriði, einkum sem varða meðferð samrunamála, í samræmi við ábendingar úr skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluúttekt á Samkeppniseftirlitinu.
Veltumörkum tilkynningarskyldra samruna var síðast breytt árið 2020. Hið sama gildir um samrunagjald. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýsluúttekt á Samkeppniseftirlitinu frá júlí 2022 er m.a. bent á að veltumörkin þurfi að endurskoða reglulegar, sem og að samrunagjald þurfi að endurskoða með það fyrir augum að það mæti betur raunkostnaði við samrunaeftirlit. Þá er í skýrslunni bent á að í samkeppnislög vanti ákvæði sem stöðvi tímafresti vegna atvika sem varða tafsama, villandi eða ranga upplýsingagjöf í samrunamálum, auk þess sem valdheimildir þess til rannsókna, svo sem húsleitar, séu þrengri en almennt gerist annars staðar í Evrópu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og markaða
steindor.dan.jensen@atrn.is