Til umsagnar
12.9.–10.10.2025
Í vinnslu
11.10.2025–25.8.2026
Samráði lokið
26.8.2026
Mál nr. S-158/2025
Birt: 12.9.2025
Fjöldi umsagna: 10
Annað
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Drög að breytingartillögum á uppgjörsreglum virðisaukaskatts o.fl. voru til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda frá 12. september til 10. október 2025. Alls bárust tíu umsagnir frá hagsmunaaðilum þar sem fram komu ýmis sjónarmið um breytingartillögurnar. Unnið er að úrvinnslu umsagnanna og mati á framhaldi málsins.
Upplýsingar og drög að breytingartillögum á reglum um uppgjör virðisaukaskatts o.fl.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur, í samvinnu við Skattinn, haft uppgjörsreglur virðisaukaskatts til athugunar. Reglurnar varða uppgjörstímabil og gjalddaga virðisaukaskatts og uppgjör á virðisaukaskatti vegna innflutnings vöru fyrir skattskylda starfsemi.
Ráðuneytið hefur enn fremur til skoðunar hvort tilefni sé til að breyta gildandi reglum um greiðslufrest aðila, sem skráðir eru á virðisaukaskattsskrá, á öðrum aðflutningsgjöldum til samræmis við breytingar á uppgjöri og skilum á virðisaukaskatti.
Markmið athugunarinnar var m.a. að kanna hvort mögulegt sé að einfalda fyrirkomulag við uppgjör á virðisaukaskatti með margháttaðan ávinning í huga. Má þar nefna að bæta lausafjárstýringu ríkissjóðs og draga þannig úr vaxtakostnaði hans, einfalda framkvæmd skattálagningar, draga úr möguleikum á undanskotum og auka gæði gagna um veltu í hagkerfinu. Athugunin fól m.a. í sér að rýna gildandi regluverk hér á landi og skoða regluverk um sama efni á öðrum Norðurlöndum og í ríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. reglur um uppgjör á virðisaukaskatti í tolli.
Unnin hafa verið drög að breytingatillögum á grundvelli framangreinds. Drögin ásamt nánari upplýsingum er að finna í meðfylgjandi skjali. Horft er til þess að breytingarnar geti tekið gildi 1. janúar 2027.
Aðilar, sem telja sig málið varða, eru hvattir til að senda inn umsögn eða ábendingu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa skattamála
fjr@fjr.is