Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 27.8.–11.9.2025

2

Í vinnslu

  • 12.9.2025–

Samráði lokið

Mál nr. S-153/2025

Birt: 28.8.2025

Fjöldi umsagna: 9

Áform um lagasetningu

Utanríkisráðuneytið

Umhverfismál

Áform um frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja

Málsefni

Með fyrirhugaðri lagasetningu er áætlað að innleiða lagalegar skuldbindingar BBNJ-samningsins um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

Nánari upplýsingar

Þann 19. júní 2023 var samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna nýr samningur undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um vernd og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja („BBNJ-samningurinn“). Samningurinn skiptist í fjóra ólíka efnishluta en heildarmarkmið hans er að stuðla að aukinni heilbrigði hafsins með verndun og sjálfbærri nýtingu auðlinda þess. Þriðji hluti samningsins setur á fót kerfi til að skilgreina svæðisbundin stjórntæki á úthafi, t.d. vernduð hafsvæði, en stofnsetning þessa kerfis er liður í því að ríki heims geti náð fram markmiði sínu um vernd 30% vatns- og landsvæða á heimsvísu fyrir árið 2030. Samningurinn hefur hingað til verið fullgildur af 50 ríkjum en hann mun öðlast gildi þegar 60 ríki hafa fullgilt hann. Utanríkisráðherra undirritaði samninginn af hálfu Íslands þann 20. september 2023, en ekki verður unnt að ljúka fullgildingu nema að undangengnum lagabreytingum. Starfshópur um fullgildingu BBNJ-samningsins metur sem svo að Ísland hafi hagsmuni af því að taka þátt í ákvarðanatöku á vettvangi fyrsta ráðstefna aðildarríkja samningsins, sem mun fara fram innan árs frá gildistöku hans, og því er áformað að ráðast í nauðsynlegar lagabreytingar á komandi haustþingi.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (46)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Laga- og stjórnsýsluskrifstofa

svanhildur.steinarsdottir@utn.is