Til umsagnar
26.8.–9.9.2025
Í vinnslu
10.9.–5.11.2025
Samráði lokið
6.11.2025
Mál nr. S-152/2025
Birt: 26.8.2025
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Engar umsagnir bárust. Drög að frumvarpi birt í Samráðsgátt stjórnvalda í október 2025.
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á skipalögum nr. 66/2021.
Með fyrirhuguðu frumvarpi um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar (EB) nr. 391/2009.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit er hluti af endurútgáfu tilskipunar ráðsins 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda. Sú tilskipun er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 142/2004 um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun. Þar sem eldri tilskipun hefur verið breytt í veigamiklum atriðum var ákveðið að endurútgefa hana til að skýra og styrkja ýmis efnisatriði.
Helstu nýmæli reglugerðar (EB) nr. 391/2009 eru breytingar á valdi framkvæmdastjórnar ESB, eða Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tilviki EFTA-ríkjanna, til að leggja á sektir og févíti ef viðurkenndar stofnanir (stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og hafa verið viðurkenndar til þeirra starfa) uppfylla ekki þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerðinni. Þessar ákvarðanir ESA yrðu svo bornar undir EFTA-dómstólinn til endurskoðunar, en ekki íslenska dómstóla. Vegna þessara ákvæða þarf lagabreytingu til að hægt sé að innleiða gerðina.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is