Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.8.–9.9.2025

2

Í vinnslu

  • 10.9.2025–7.1.2026

3

Samráði lokið

  • 8.1.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-147/2025

Birt: 12.8.2025

Fjöldi umsagna: 5

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald

Niðurstöður

Frumvarp samþykkt á Alþingi 18. desember 2025

Málsefni

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (umbúðir, uppfærslur viðauka).

Nánari upplýsingar

Með lögum nr. 103/2021 sem tóku að fullu gildi þann 1. janúar 2023 og innleiddu tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850, (ESB) 2018/851, (ESB) 2018/852 og (ESB) 2019/904 voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framlengda framleiðendaábyrgð en verið hafði fram að því og eru nú allar tegundir umbúða látnar sæta úrvinnslugjaldi. Í lögum um úrvinnslugjald er almenna reglan sú að framleiðendur og innflytjendur gefi upp þyngd og tegund umbúða utan um vörur sem fluttar eru inn en í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er þeim heimilt að gefa upp meginsöluumbúð viðkomandi vöru og greiða úrvinnslugjald í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka XVIII við lögin. Viðaukinn tók gildi þann 1. mars 2023 með lögum nr. 127/2022 um breytingu á lögum um úrvinnslugjald. Reynsla síðustu tveggja ára hefur dregið fram þörf á nauðsynlegum uppfærslum á viðaukanum til þess annars vegar að endurspegla betur meginsöluumbúðir tiltekinna vara og hins vegar til þess að ná betur utan um magn flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vara er ekki seld í söluumbúðum, heldur er seld í lausu. Mikilvægt er að reiknilíkanið sæti reglulega endurskoðun og uppfærslu til að álagning úrvinnslugjalds sé sem réttust hverju sinni.

Í 8. gr. laga um úrvinnslugjald nr. 162/2002 er kveðið á um þá vöruflokka sem úrvinnslugjald er lagt á eins og nánar er kveðið á um í viðaukum við lögin. Mikilvægt er að gæta að því að viðaukarnir séu uppfærðir reglulega og í takt við breytingar á tollskrárnúmerum í tollskrá. Síðastliðin þrjú ár hefur tollskránni verið breytt þrisvar sinnum með auglýsingum um breytingu á viðauka I við tollalög, nr. 85/2005, og því er nauðsynlegt að uppfæra viðauka við lög um úrvinnslugjald til samræmis.

Tilefni lagasetningarinnar er því að uppfæra tiltekna viðauka við lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, þannig að þeir taki mið af breytingum sem gerðar hafa verið á tollskrá og að uppfæra reiknilíkan viðauka XVIII svo að álagning úrvinnslugjalds á umbúðir sé sannarlega á vörur sem eiga að bera úrvinnslugjald á hverjum tíma og nái einnig til flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (9)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfis og orku

trausti.hermannsson@urn.is