Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–25.8.2025

2

Í vinnslu

  • 26.8.–15.9.2025

3

Samráði lokið

  • 16.9.2025

Mál nr. S-146/2025

Birt: 11.8.2025

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Frestun á gildistöku nýrra reglna um markaðsáhættu

Niðurstöður

Engin umsögn barst. Reglugerðin var lögfest með lögum nr. 102/2025 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002 (CRR III), sem tóku gildi í lok desember 2025.

Málsefni

Áformað er að innleiða reglugerð sem frestar gildistöku nýrra reglna um eiginfjárkröfur vegna markaðsáhættu banka til 1. janúar 2027.

Nánari upplýsingar

Í reglugerð (ESB) nr. 575/2013, um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir („CRR“), sem gildir sem lög hér á landi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, eru settar fram kröfur um eigið fé lánastofnana. Umfang krafnanna tekur meðal annars mið af markaðsáhættu lánastofnana, sem er hætta á tapi vegna óhagstæðra breytinga á markaðsverðum, svo sem á verði hlutabréfa og gengi gjaldmiðla.

Evrópusambandið samþykkti með reglugerð (ESB) 2024/1623 („CRR III“) að breyta meðal annars reglum um eigið fé vegna markaðsáhættu til að innleiða breytingar á alþjóðlegum viðmiðum um varfærniskröfur sem gerðar eru til banka, svonefndan Basel III-staðal. Sá staðall er afrakstur gagngerrar endurskoðunar á varfærniskröfum til banka sem var ráðist í af hálfu Basel-nefndarinnar um bankaeftirlit í því skyni að bæta úr vanköntum sem alþjóðlega fjármálakreppan sem hófst á árunum 2007 og 2008 leiddi í ljós. Breytingunum á reglunum um eigið fé vegna markaðsáhættu var ætlað að gera eiginfjárkröfurnar áhættunæmari. Jafnframt var leitast við að draga úr mun á mati á markaðsáhættu milli lánastofnana, meðal annars með því að auka heimildir eftirlitsaðila til að hafa eftirlit með niðurstöðum áhættumatslíkana lánastofnana og takmarka notkun ófullnægjandi líkana.

Evrópusambandið samþykkti með reglugerð (ESB) 2024/2795 að fresta tilteknum breytingum CRR III á kröfum um eigið fé vegna markaðsáhættu um eitt ár, til janúar 2026. Það skýrðist af því að innleiðingu hliðstæðra breytinga utan Evrópusambandsins hafði seinkað, einkum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Með seinkuninni átti að koma í veg fyrir lakari samkeppnisstöðu banka á Evrópska efnahagssvæðinu gagnvart bönkum utan þess.

Frumvarp til að innleiða CRR III og reglugerð (ESB) 2024/2795 var lagt fram á síðasta löggjafarþingi (263. þingmál) en var ekki afgreitt. Til stendur að leggja að nýju fram frumvarp til að innleiða gerðirnar á næsta löggjafarþingi.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú lagt fram tillögu að reglugerð, C(2025)3643, þar sem lagt er til að breytingunum á kröfum um eigið fé vegna markaðsáhættu verði frestað um eitt ár í viðbót, til janúar 2027. Það skýrist aftur af töfum á innleiðingu hliðstæðra breytinga utan Evrópusambandsins.

Þess er að vænta að Evrópusambandið samþykki á næstunni endanlega útgáfu reglugerðarinnar. Gert er ráð fyrir að hún verði svo tekin sem fyrst upp í EES-samninginn. Íslandi mun bera þjóðréttarleg skylda til að leiða hana í landsrétt þegar og ef hún verður tekin upp í samninginn.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (22)

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is